Fréttir

Enginn skóli í dag vegna veðurs.

Góðan dag kæru foreldrar Mikið hvassvirðri og ofankoma er nú á Akureyri. Í samráði við lögreglu er allt skólahald fellt niður í dag.
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu - myndir

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Naustaskóla í dag. Skólinn var settur í hátíðarbúning og skreyttur með íslenska fánanum. Bæði nemendur og starfsfólk lögðu niður störf klukkan níu og settust niður og lásu í bók í 20 mínútur. Efnt var til ljóðakeppni í tilefni dagsins og margir fundu ljóðskáldið innra með sér og sendu inn ljóð. Hér má sjá myndir frá þessum ánægjulega degi.
Lesa meira

Starfsdagur á morgun, föstudag og Frístund lokuð!

Við minnum á að á morgun, föstudaginn 17. nóvember er starfsdagur hér í Naustaskóla og því engin kennsla og Frístund verður lokuð.
Lesa meira

Heimsókn Blakdeildar KA í íþróttatíma

Í þessari viku fengum við frábæra gesti frá Blakdeild KA í heimsókn til okkar. Þetta voru þjálfarar meistara- og yngri flokka blakdeildarinnar og leikmenn. Þau eru öll enskumælandi og fengu börnin því góða æfingu í ensku ásamt mjög skemmtilegum blakæfingum. Börnin tóku gestum okkar mjög vel, voru áhugasöm og lögðu sig öll fram við æfingarnar. Þjálfararnir áttu ekki til orð yfir fallega skólanum okkar og fannst dásamlegt að fylgjast með glöðum börnum á göngum skólans. Hér má sjá nokkrar myndir úr tímunum.
Lesa meira

Ný læsisstefna, Læsi er lykillinn kynnt á Akureyri

Við erum afskaplega stolt af því að kynna til sögunnar nýja læsisstefnu sem nú verður tekin í notkun í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar. Læsisstefnan Læsi er lykillinn var formlega kynnt á vegum fræðslusviðs Akureyrarbæjar og Miðstöðvar skólaþróunar HA að viðstöddu fjölmenni fimmtudaginn 7. september síðastliðinn. Þá var sérstök kynning á stefnunni á Fundi fólksins í Hofi um nýliðna helgi. Megintilgangur læsisstefnunnar er að efla læsi í víðum skilningi og stuðla að skapandi og gagnrýninni hugsun barna og ungmenna. Læsisstefnan er afrakstur rúmlega þriggja ára ferlis sem hefur byggst á öflugri samvinnu margra aðila. Skipulag vinnunnar tók mið af hugmyndum um lærdómssamfélag (e. learning community) þar sem lögð var áhersla á að allir sem hlut eiga að máli kæmu að vinnunni. Læsisstefnan Læsi er lykillinn er byggð á ástralskri fyrirmynd en þróuð og staðfærð að aðalnámsskrá íslenskra leik- og grunnskóla. Unnið er út frá hugmyndafræðinni um læsi í víðum skilningi sem skiptist í þrjú meginsvið: Samræða, tjáning og hlustun, lestur, lesskilningur og lesfimi og ritun og miðlun. Hagnýt gögn stefnunnar byggja á þrepum um þróun læsis, þar sem sett eru fram viðmið um færniþætti og áherslur í kennslu út frá öllum þáttum læsis. Samvinna við kennara á vettvangi leik- og grunnskólanna hefur verið lykilatriði í þróun á innihaldi stefnunnar en sérfræðingar á Miðstöð skólaþróunar við HA hafa stýrt verkinu. Læsisstefnan „Læsi er lykillinn“ birtist á heimasíðunni www.lykillinn.akmennt.is og er hún opin öllum. Á síðunni er að finna heildaráherslur stefnunnar ásamt ýmsu ítarefni sem er hagnýtt bæði fyrir kennara, foreldra og aðra þá sem hafa áhuga á læsi barna. Hönnunarfyrirtækið Geimstofan, auglýsinga- og skiltagerð á Akureyri sá um hönnunarvinnu á útliti efnis á síðunni. Við hvetjum bæði foreldra og alla þá sem fylgjast með skólastarfinu til að skoða hina nýju heimasíðu læsisstefnunnar www.lykillinn.akmennt.is Þar er að finna mikið af upplýsingum, en fyrst og fremst metnaðarfulla læsisstefnu fyrir leik- og grunnskólastigið sem gerir kennurum kleift að vinna enn markvissar að öflugu læsi barna í skólunum okkar. Við viljum vekja athygli á að heimasíðan er opin öllum. Kærleikskveðja, Soffía Vagnsdóttir Sviðsstjóri fræðslusviðs netfang: soffiav@akureyri.is
Lesa meira

Myndir frá Halloween balli

Hér koma nokkrar myndir frá Halloween balli 7. bekkjar!
Lesa meira

Brunaæfing í dag

Kæru foreldrar og forráðamenn. Í dag var óundirbúin brunaæfing í Naustaskóla. Samkvæmt öryggiskröfum eldvarnareftirlitsins ber okkur að hafa eina slíka æfingu á hverju skólaári og var ákveðið að gera það áður en veturinn skellur á. Brunaboðinn fór í gang kl. 10:30 og nemendur og starfsfólk fylgdu verklagsreglum um rýmingu húsnæðisins. Nemendur fóru út á sokkunum og því eru blautir og skítugir sokkar í töskum nemenda. Rýmingin gekk í flesta staði mjög vel en einnig komu hlutir í ljós sem við þurfum að æfa betur og munum við skerpa á verklagsreglum í kjölfarið. Síðar á skólaárinu verður svo undirbúin brunaæfing þar sem nemendur og kennarar fá tækifæri til þess að æfa rýmingu á nýjan leik. Umsjónarkennarar settust niður með sínum hópum að æfingu lokinni og ræddu um brunaæfinguna. Mögulegt er að einhverjir nemendur vilji ræða málin frekar heima. Bestu kveðjur, Bryndís, Alla og Þorgeir
Lesa meira