Teymiskennsla

Af hverju veljum við teymiskennslu?

Kostir fyrir nemendur ef vel tekst til:


  •  Meiri sveigjanleiki og fjölbreytni í verkefnum
  • Hægt að hafa smærri hópa og mæta ólíkum þörfum nemenda
  • Fleiri kennarar á svæðinu til að aðstoða nemendur
  • Aðstæðum sem koma upp á er hægt að sinna strax, nemendur síður skildir eftir einir.
  •  Félags- tilfinninga- og námsþarfir nemandans eru ræddar af kennurum sem allir þekkja nemandann
  •  Nemendur tengjast fleiri kennurum, hafa fleiri til að leita til með ráðleggingar og aðstoð
  •  Nemendur geta fylgst með góðum samskiptum milli kennaranna og upplifa jákvæða fyrirmynd í samskiptum fullorðinna.
  •  Öryggið er fyrir hendi þótt einn kennara vanti
  •  Betra að fylgjast með samskiptum í skólastofunni
  •  Námsmat sanngjarnara þar sem fleiri koma að því - betur sjá augu en auga
  • Fjölbreyttari félagahópur og getur leitt til meiri samheldni innan nemendahópsins
 
Kostir fyrir kennara:
 
  •  Meira samstarf, skemmtilegra í vinnunni, minni einangrun
  •  Samvinna og stuðningur, ekki síst við erfið samskipti og agamál
  •  Kennarar fá mikinn stuðning hvor frá örðum við markmiðsgerð og val aðferða og leiða
  •  Kennarar geta nýtt mismunandi hæfileika sína eftir því sem við á
  •  Meiri líkur á fjölbreyttari vinnubrögðum og aðferðum
  •  Vinnuhagræðing / verkaskipting / álagið dreifist
  •  Hægt er að bregðast strax við aðstæðum sem koma upp
  •  Fjölbreyttari sýn á nemendur
  •  Námsmat samræmdara
  •  Kennarar læra af hvor öðrum
  •  Unnið eftir námsáætlun eins og hægt er þó einn kennara vanti
  •  Betra að fylgjast með samskiptum í skólastofunni