Ný læsisstefna, Læsi er lykillinn kynnt á Akureyri

Við erum afskaplega stolt af því að kynna til sögunnar nýja læsisstefnu sem nú verður tekin í notkun í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar. Læsisstefnan Læsi er lykillinn var formlega kynnt á vegum fræðslusviðs Akureyrarbæjar og Miðstöðvar skólaþróunar HA að viðstöddu fjölmenni fimmtudaginn 7. september síðastliðinn. Þá var sérstök kynning á stefnunni á Fundi fólksins í Hofi um nýliðna helgi.

Megintilgangur læsisstefnunnar er að efla læsi í víðum skilningi og stuðla að skapandi og gagnrýninni hugsun barna og ungmenna.

Læsisstefnan er afrakstur rúmlega þriggja ára ferlis sem hefur byggst á öflugri samvinnu margra aðila. Skipulag vinnunnar tók mið af hugmyndum um lærdómssamfélag (e. learning community) þar sem lögð var áhersla á að allir sem hlut eiga að máli kæmu að vinnunni.

Læsisstefnan Læsi er lykillinn er byggð á ástralskri fyrirmynd en þróuð og staðfærð að aðalnámsskrá íslenskra leik- og grunnskóla.

Unnið er út frá hugmyndafræðinni um læsi í víðum skilningi sem skiptist í þrjú meginsvið: Samræða, tjáning og hlustun, lestur, lesskilningur og lesfimi og ritun og miðlun. Hagnýt gögn stefnunnar byggja á þrepum um þróun læsis, þar sem sett eru fram viðmið um færniþætti og áherslur í kennslu út frá öllum þáttum læsis.

Samvinna við kennara á vettvangi leik- og grunnskólanna hefur verið lykilatriði í þróun á innihaldi stefnunnar en sérfræðingar á Miðstöð skólaþróunar við HA hafa stýrt verkinu.

Læsisstefnan „Læsi er lykillinn“ birtist á heimasíðunni www.lykillinn.akmennt.is og er hún opin öllum. Á síðunni er að finna heildaráherslur stefnunnar ásamt ýmsu ítarefni sem er hagnýtt bæði fyrir kennara, foreldra og aðra þá sem hafa áhuga á læsi barna.

Hönnunarfyrirtækið Geimstofan, auglýsinga- og skiltagerð á Akureyri sá um hönnunarvinnu á útliti efnis á síðunni.

Við hvetjum bæði foreldra og alla þá sem fylgjast með skólastarfinu til að skoða hina nýju heimasíðu læsisstefnunnar www.lykillinn.akmennt.is

Þar er að finna mikið af upplýsingum, en fyrst og fremst metnaðarfulla læsisstefnu fyrir leik- og grunnskólastigið sem gerir kennurum kleift að vinna enn markvissar að öflugu læsi barna í skólunum okkar.

Við viljum vekja athygli á að heimasíðan er opin öllum.

 Kærleikskveðja,

 

Soffía Vagnsdóttir
Sviðsstjóri fræðslusviðs
netfang: soffiav@akureyri.is