Skipulagsdagur mánudaginn 2. nóvember 2020

Fræðsluyfirvöld á Akureyri hafa ákveðið að hafa skipulagsdag mánudaginn 2. nóvember í leik- og grunnskólum, tónlistarskólanum og frístundastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða stjórnvalda. Þetta er gert svo starfsfólk skólanna fái svigrúm til að endurskipuleggja skólastarfið og tryggja að sóttvarnir verði eins vandaðar og kostur er.
Þriðjudaginn 3. nóvember verður viðtalsdagur í Naustaskóla.
Miðvikudaginn 4. nóvember verður starf í Naustaskóla samkvæmt breyttu skipulagi og nýrri reglugerð um sóttvarnir í leik- og grunnskólum.
Nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forsjáraðila fyrir dagslok á morgun, mánudag.
Stjórnendur Naustaskóla
Bryndís, Alla og Heimir.