Skipulag næstu daga í Naustaskóla

Stjórnendur leik-, grunn- og tónlistarskóla Akureyrarbæjar hafa síðan á föstudag unnið að útfærslu á skólastarfi í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis og stjórnvalda. Í dag hefur allt starfsfólk komið að málum og hver skóli útfært starf í viðkomandi skóla næstu daga og vikur.

Í ljósi þess að skólastarf verður með mismunandi hætti milli skóla eru foreldrar beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu á heimasíðum skólanna auk þess sem allir foreldrar munu fá nánari upplýsingar í tölvupósti í dag, mánudag.

Grunnskólar

Kennsla verður í hópum með hámark 20 nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins. Skólar munu halda úti eins miklu skólastarfi og kennslu og kostur er við þessar aðstæður. Útfærslan verður í höndum hvers skóla að skiptingu kennslu milli viðveru í skóla og náms heima. Nákvæm útfærsla verður því ólík milli skóla, allt eftir mannafla og aðstæðum á hverjum stað.

Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum mun falla niður og íþrótta- og sundkennsla verður í formi hreyfingar á skólalóð, inni í hópastofum eða annarrar útikennslu. Hver skóli skipuleggur nánari tilhögun skóladagsins og kennslutilhögun. Sérdeildir og sérskólar verða með óbreytta starfsemi eftir fremsta megni. Framreiðsla á mat verður í boði ef mögulegt er að koma því við.

Vettvangsferðir falla niður ásamt ferðum í skólabúðir.

Hugað verður sérstaklega að þörfum barna með hverskonar sérþarfir auk þess að tryggja þeim foreldrum sem starfa á heilbrigðisstofnunum þjónustu fyrir þeirra börn.

Leikskólar

Gert er ráð fyrir því að halda starfsemi leikskóla gangandi á sem öruggastan hátt með þeim hætti að börn verði í sem minnstum hópum og aðskilin sem mest. Vegna þessa raskast skólastarf í leikskólum, opnunartími getur breyst s.s. vegna þrifa sem nauðsynleg eru og í einhverjum tilvikum. Hver leikskóli mun upplýsa foreldra um útfærslu á skólastarfi á heimasíðu eða í gegnum aðra miðla.

Frístundaheimili og félagsmiðstöðvar

Frístundaheimili verða opin í framhaldi af skóladegi yngstu nemenda en viðbúið er að starfsemi muni að einhverju leyti skerðast.

Tónlistarskólar og skólahljómsveitir

Tímar í hljóðfærakennslu og söngkennslu fara fram í húsnæði Tónlistarskóla Akureyrar. Hóptímar s.s. hljómsveitartímar, hópæfingar, tónfundir, forskóli og tónfræðitímar falla niður. Allir viðburðir tengdir þessari starfsemi falla niður. Viðmið þessi taka einnig til tónlistarnemenda sem eru eldri en 18 ára. Lögð er áhersla á að leitað sé leiða til að viðhalda virkni óháð fjarveru og niðurfellingu tónlistartíma. Nákvæmari útfærsla mun koma frá TA.

Skólaíþróttir og íþróttafélög

Ekki verður hefðbundin íþrótta- og sundkennsla á vegum grunnskóla í samkomubanninu. Viðkomandi húsnæði verður lokað fyrir skólakennslu og íþrótta- og sundkennarar vinna með námshópnum í heimastofu eða úti á skólalóð. Íþróttafélög munu gefa út eigin tilkynningar um íþróttaæfingar. Tilkynningar eru þegar komnar frá íþróttasamböndum um leikjabann.

Skólastarf í Naustaskóla næstu vikurnar

Hér í Naustaskóla hefur verið unnið ötullega að hópaskiptingum og öðru skipulagi næstu vikna.

Kennarar munu senda til foreldra bréf með upplýsingum um þann hóp sem þeirra barn tilheyrir næstu vikurnar. Þar kemur einnig fram hvar í húsinu barninu verður kennt og hverjir sjá um kennsluna og inn um hvaða inngang hver námshópur kemur. Búið er að skipta námshópunum á innganga hússins til að koma í veg fyrir samskipti þeirra á milli. Biðjum við foreldra að kynna sér vel bréf frá kennurum en þar ættu að finnast svör við flestum spurningum.

Við munum fella niður útivistardag á morgun og árshátíð skólans hefur verið frestað um óákveðin tíma.  

Hér fyrir neðan má sjá tímasetningar á viðveru nemenda eftir árgöngum.

Mikilvægt er að þessar tímasetningar séu virtar til þess að lágmarka megi samgang nemenda.

Ø  1.- 4. bekkur verður í skólanum frá kl. 8:10 – 13:00. Þau fá að borða í skólanum og þau börn sem eru skráð í Frístund fara þangað þegar skóla líkur. Foreldrar barna í frístund eru beðin um að senda þau með nesti fyrir síðdegishressingu en boðið verður upp á drykki í skólanum.

Ø  5. – 7. bekkur. Verður í skólanum frá kl. 8:20 – 12:30. þau fá að borða í skólanum og fara síðan heim.

Ø  8. – 10. bekkur mætir kl. 13:00 – 15:30.  Hjá þeim árgöngum verður einnig lögð áhersla á fjarnám. Þau geta komið 12:45 og borðað áður en kennsla hefst.

 Ekki er hægt að bjóða upp á ávexti í nestistímum og þurfa nemendur því að koma með hollt nesti að heiman. Við munum ekki bjóða upp á hafragraut næstu vikur.

Frístund verður starfandi fyrir nemendur sem þar eru skráðir. Starfsmenn Frístundar munu skipta börnunum upp í litla hópa sem dreifast á svæði Frístundar og yngri deilda á neðri hæð.

Þessar upplýsingar eru vissulega ekki tæmandi og margar spurningar munu eflaust vakna. Við biðjum ykkur að kynna ykkur þessar upplýsingar vel og einnig upplýsingar frá kennurum. Við bendum á að mikilvægt er að fylgjast með tölvupósti og á heimasíðu skólans þar sem allar helstu upplýsingar verða settar inn eftir þörfum. Mögulega verða einhverjar breytingar á skipulagi næstu daga. Við minnum okkur öll á að við gegnum mikilvægu hlutverki í almannavörnum og erum meðvituð í samskiptum og  sóttvörnum. Við höfum takmarkað aðgengi að skólanum og biðjum við foreldra að kveðja börn sín fyrir utan skólann ef mögulegt er. Mikilvægt er að tilkynna til skólans veikindi eða ef barn eða fjölskylda fer í sóttkví. Ákveði foreldrar að halda börnum sínum heima eða að nýta ekki Frístund biðjum við um að senda þær upplýsingar til ritara skólans.

Við stjórnendur og starfsfólk Naustaskóla erum þakklát fyrir þann stuðning og velvilja sem við höfum fundið fyrir í þessum erfiðu aðstæðum. Á þessum erfiðu tímum er mikilvægt að við tökum höndum saman til þess að tryggja að börnunum líði vel og að þau finni fyrir öryggi.

Stjórnendur Naustaskóla.