Útivistardagur á þriðjudaginn (2.feb)

Þriðjudaginn 2. febrúar er áformaður útivistardagur í Naustaskóla (ef veður leyfir) þar sem okkur býðst að fara í Hlíðarfjall.  Þeim nemendum sem ekki geta farið í fjallið af heilsufars- eða öðrum mjög brýnum ástæðum verður boðið upp á afþreyingu í skólanum. 

Nemendur í 4.-10. bekk geta fengið lánaðan búnað endurgjaldslaust en nemendur í 1.-3. bekk geta því miður ekki fengið lánaðan búnað en er velkomið að hafa með sinn eigin búnað eða snjóþotur og sleða.  Unnið er að því að kanna þörf fyrir búnað fyrir nemendur og þurfum við að senda þær upplýsingar upp í fjall fyrir vikulokin.  Hægt verður að fara á svigskíði, bretti, gönguskíði eða jafnvel fara í gönguferð.

Við komuna í fjallið fá nemendur lyftukort sem gilda allan daginn og geta eldri nemendur nýtt sér það ef vilji er til, en athugið að skila þarf inn lánsbúnaði um hádegi, þegar rútur á vegum skólans fara heim. 

Ef nemendur óska eftir að verða eftir í fjallinu þegar dagskrá lýkur þurfa foreldrar að hafa óskað eftir því við umsjónarkennara eða ritara skólans með símtali eða tölvupósti. Athugið að nemendur eru þá á eigin vegum eftir að rútur skólans eru farnar.

Þegar nemendur koma til baka í skólann fá þeir hádegisverð, yngstu nemendurnir fara í eina kennslustund en fara að því búnu heim (eða í Frístund ef þeir eru skráðir þar). Áætlaða heimferðartíma má sjá hér á eftir:

Tímasetningar:

  • 1.-3. bekkur:  Mæting í skóla kl. 8:10
    • Brottför frá skóla kl. 8:30
    • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 11:20
    • Skóladegi lýkur kl. 13:00

 

  • 4.-7. bekkur:   Mæting í skóla kl. 8:10
    • Brottför frá skóla kl. 8:15
    • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 12:00
    • Skóladegi lýkur kl. 13:00

 

  • 8.-10. bekkur  Mæting í skóla kl. 8:50
    • Brottför frá skóla kl. 9:00
    • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 12:40
    • Skóladegi lýkur ca. kl. 13:30

 

Útbúnaður:

  • Skíði, bretti, snjóþotur, þoturassar, svartir plastpokar og sleðar eru leyfðir til fararinnar.
  • Hjálmar eru nauðsynlegir! (Bent er á að hægt er að nota reiðhjólahjálma)
  • Mikilvægt  er að nemendur séu vel klæddir og í vel merktum fatnaði.
  • Ekki gleyma snjóbuxunum, vettlingunum og húfunni.
  • Nesti:  nemendur komi sjálfir með hollt og gott nesti. Sjoppa er ekki opin.