Skólaslit í Naustaskóla 2016

Mánudaginn 6. júní var Naustaskóla slitið í 7. sinn. Um morguninn komu yngri nemendur og fengu vitnisburð sinn afhentan og seinnipart dags útskrifuðust 31 nemandi úr 10. bekk við hátíðlega athöfn. Eftir athöfn buðu 9. bekkingar og foreldrar þeirra upp á kaffi og meðlæti. Við athöfnina var Ágúst skólastjóri kvaddur og honum þakkað hans framlag við stofnun og mótun Naustaskóla. Hans verður saknað úr skólasamfélagi Naustaskóla og óskum við honum velfarnaðar á nýjum slóðum. Hér má sjá myndir frá athöfninni.  https://goo.gl/photos/z8ztXiGvwTUAh65X8