Skólahreysti 2017

Trausti Lúkas, Viktor Axel, Kolbrún Perla, Kolbeinn Fannar, Sara Ragnheiður og Júlía Rós.
Trausti Lúkas, Viktor Axel, Kolbrún Perla, Kolbeinn Fannar, Sara Ragnheiður og Júlía Rós.

Skólahreysti 2017 fór fram í Íþróttahöllinni í gær og var mikið fjör að vanda. Naustaskóli átti þar verðuga fulltrúa sem stóðu sig eins og alvöru hetjur og urðu í 4. sæti í keppninni. Það voru þau Júlía Rós Bergþórsdóttir, Kolbeinn Fannar Gíslason, Kolbrún Perla Þórhallsdóttir, Sara Ragnheiður Kristjánsdóttir, Trausti Lúkas Adamsson og Viktor Axel Þorgeirsson. Síðuskóli var í fyrsta sæti annað árið í röð, þá Brekkuskóli og Lundarskóli í því þriðja. Hér má sjá nokkrar myndir sem Árni Hrólfur tók í Höllinni.