Síðasti vinnudagur Lillu!

Í dag var síðasti vinnudagur Lillu skólaliða sem hefur unnið við skólann frá upphafi hans. Lilla var kvödd með ýmsu móti og m.a. ákváðu nemendur og kennarar í 1. bekk að koma Lillu á óvart og kveðja hana með fallegum söng. Þetta var hjartnæm stund enda Lilla búin að vera nemendum stoð og stytta og munum við sakna hennar sárt. Við óskum Lillu gæfu og þökkum henni fyrir vel unnin störf! Hér má sjá nokkrar myndir....