Jákvæður agi - foreldranámskeið

Við minnum á foreldranámskeið í Jákvæðum aga sem haldið verður í Naustaskóla miðvikudaginn 15. febrúar kl. 17–19 og 22. febrúar kl. 17–19.

Skráning fer fram hjá Kristjönu ritara í síma 4604100 eða á netfanginu kristjana@akmennt.is

Jákvæður agi kennir börnum og unglingum félagsfærni og lífsleikni. Jákvæður agi byggir upp samband væntumþykju og virðingar milli barns og fullorðins og meginmarkið er sameiginleg lausnaleit. Jákvæður agi leggur áherslu á að kenna, hvetja og sýna skilning í samskiptum sem byggja á gagnkvæmri virðingu.

Á námskeiðinu er lögð rík áhersla á þátttöku allra í æfingum og umræðum þeim tengdum. Einnig verður fjallað um uppbyggingu fjölskyldufunda og verkfæri Jákvæðs aga.

Vonumst til að sjá sem flesta!