Fréttir

Unicef - dagurinn

Mánudaginn 23. maí helguðum við hluta dagsins söfnun og dagskrá í samvinnu við Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.  Þá söfnuðu krakkarnir peningum með því að vinna ýmsar þrautir sem fólust í hreyfingu og líkamlegri áreynslu. Þetta tókst stórvel þrátt fyrir þungbúið veður og kulda, og voru krakkarnir okkar afskaplega dugleg að hreyfa sig og erfiða í þágu söfnunarinnar. Fjármunirnir sem safnast renna svo til Unicef þar sem þeir verða nýttir til að aðstoða börn víða um heim með menntun, heilbrigðisþjónustu o.f.  Þegar þetta er skrifað er söfnunarféð enn að safnast til okkar þannig að ekki er vitað hversu mikið safnaðist í heildina.
Lesa meira

Vorhátíð

Vorhátíð Naustahverfis 2011 verður haldin föstudaginn 27. maí og hefst kl. 16:15 í Naustaborgum. Dagskrá í Naustaborgum kl. 16:15-18:00· Þrautabraut · Andlitsmálning · Stultur, kastveggur o.fl. · Trúðar · Kubb, boccia o.fl. · Leikir · Sápukúlublástur · Flugdrekar · Grillaðar pylsur - ókeypis :) · Ótrúlega gott veður ! Opið hús í Naustaskóla frá kl. 17:30· Kaffihús á neðri hæð skólans          o Kaffi / safi / mjólk og vöfflur            o Fullorðnir 300 kr.             o 6-16 ára 200 kr. · Tombóla – 50 kr. miðinn · Föndurborð · Spákona · Sýningar á verkum nemenda Ball fyrir nemendur í 1.-4. bekk kl. 18:30-19:45 (200 kr. aðgangseyrir) Ball fyrir nemendur í 5.-8. bekk kl. 20:00-22:00 (300 kr. aðgangseyrir)
Lesa meira

Nýtt fréttabréf

Nú er komið út seinna fréttabréf maímánaðar en þar er m.a. að finna upplýsingar um dagskrána hjá okkur síðustu dagana í vetur, kennsluteymi næsta vetrar o.fl.  Smellið hér til að opna fréttabréfið...
Lesa meira

Ný aðalnámskrá staðfest

Mennta- og menningarmálaráðherra staðfesti í gær, 16. maí 2011, nýjar aðalnámskrár fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Í þeim birtist ný menntastefna sem hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Kjarni menntastefnunnar er settur saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun.  Námskrárnar eru aðgengilegar á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins en fyrirhugað er að gefa þær út á prenti í haust. Námskrárnar taka gildi frá og með næsta skólaári og verða innleiddar á þremur árum.  Sjá nánar hér...
Lesa meira

Myndir frá skólabúðadvöl 4. bekkjar

Nemendur 4. bekkjar dvöldu í skólabúðum að Kiðagili í Bárðardal dagana 2.-4. maí sl.  Þar var ýmislegt skemmtilegt brallað og var dvölin bæði fróðleg og skemmtileg fyrir krakkana.  Nú erum við búin að setja helling af myndum frá Kiðagili inn á myndasíðuna okkar og má nálgast þær hér. 
Lesa meira

Niðurstöður foreldrakönnunar

Nú á dögunum var gerð könnun meðal foreldra um ýmsa þætti varðandi skólastarfið.  Niðurstöður könnunarinnar verða síðan nýttar við mat á skólastarfinu og til að forgangsraða og leggja á ráðin um verkefni til úrbóta þar sem veikleikar koma fram.  Í heildina eru niðurstöðurnar jákvæðar og er afar fróðlegt og gagnlegt að kynna sér þær.  Við birtum niðurstöðurnar hér á vefnum og má nálgast þær með því að smella hér...
Lesa meira

Fréttabréf - maí

Fréttabréf maímánaðar er komið út, smellið hér til að opna fréttabréfið...
Lesa meira

Óskað eftir tilnefningum

Samkvæmt skólastefnu Akureyrarbæjar skal árlega veita þeim einstaklingum eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til.  Foreldrar, nemendur, kennarar, skólar og bæjarstofnanir geta tilnefnt verkefni í skóla til viðurkenningar.
Lesa meira

Ljóðasamkeppni Norðurorku

Norðurorka efnir til ljóðasamkeppni meðal grunnskólabarna á þjónustusvæðum sínum í Eyjafirði undir yfirskriftinni  „Hvers virði er mér vatnið".  Hvað dettur okkur í hug þegar við förum yfir venjulegan dag í lífi okkar og skoðum hvenær og hvernig við notum vatnið. Til hvers er vatnið notað? Við drekkum það, notum það í matreiðslu og hitum húsin með því. Við böðum okkur í því, syndum í því og búum til rafmagn með því. Vatnið er notað út um allt. Vatnið er ekki bara dásamlegt, það er líka lífsnauðsynlegt. En hvaðan kemur það? Hvernig kemst það í húsin til okkar? Hvert fer það þegar við erum búin að notað það? Keppt er í þremur flokkum; 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur  Ljóðunum geta nemendur skilað á skrifstofu skólans síns eða sent þau í pósti til Norðurorku, Rangárvöllum, 603 Akureyri – merkt ljóðasamkeppni. Í ljóðabréfinu þarf að koma fram heiti ljóðsins, nafn höfundar og heimilisfang, sími og/eða netfang, skóli og bekkur. Skilafrestur er til 13. maí.  Nánari upplýsingar og skýringar má finna á heimasíðu Norðurorku http://www.no.is/  
Lesa meira

Íslensku menntaverðlaunin

Núna í vor verða Íslensku menntaverðlaunin afhent í sjöunda sinn.  Verðlaun þessi eru sannkölluð þjóðarverðlaun því hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar. Við höfum flest skoðanir á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli.   Embætti forseta Íslands veitir verðlaunin og eru allir hvattir til að senda inn tilnefningar um þá sem þeir telja að hafi gert góða hluti og eigi skilið að fá Íslensku menntaverðlaunin, og þannig vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskum grunnskólum.  Nánari upplýsingar má nálgast hér..
Lesa meira