Fréttir

Sumarfrí

Vegna sumarfría verður skrifstofa skólans lokuð 24. júní til 6. ágúst en ef þörf krefur má hafa samband við skólastjóra með tölvupósti á netfangið agust@akureyri.is Skólastarf hefst á nýjan leik með skólasetningu þann 22. ágúst, foreldrar munu fá tölvupóst um miðjan ágúst með upplýsingum um skólabyrjunina. Hér má finna skóladagatal næsta skólaárs. Við þökkum fyrir veturinn og óskum þess að nemendur, foreldrar og starfsfólk eigi gott sumar. 
Lesa meira

Ársskýrsla Naustaskóla 2012-2013

Ársskýrsla Naustaskóla fyrir skólaárið 2012-2013 er nú aðgengileg hér á vefnum.  Skýrslan hefur að geyma samantekt á ýmsum upplýsingum varðandi liðið skólaár, mat á því hvernig til hefur tekist og nokkrar tillögur til úrbóta fyrir næsta ár.  Smellið hér til að opna ársskýrsluna...
Lesa meira

Útskrift 10. bekkjar 2013

Hér er að finna myndir frá fyrstu útskrift 10. bekkinga í Naustaskóla auk annara mynda.
Lesa meira

Vorþemadagar - myndir

Nú er komið heilmikið af myndum inn á síðuna okkar frá þemadögunum vorið 2013.  Þetta árið skipulögðum við vorþemað þannig að annan daginn fóru nemendur í Kjarnaskóg en hinn daginn unnu þeir í aldursblönduðum hópum í stöðvavinnu þar sem afar margt var brallað.  Má þar nefna reiðhjólaþrif, myndbandsgerð, mósaík listaverkagerð, vinabönd, mála parísa o.fl. á plan á skólalóðinni, búa til risasápukúlur, leysa þrautir, hreyfa sig á margvíslegan hátt og margt fleira.  Smellið hér til að sjá myndirnar.
Lesa meira

Ýmsar myndir frá skólastarfinu.

Hér má sjá ýmsar myndir frá skólastarfinu síðustu daga. Frjálsíþróttamót 4.-5. í Naustaborgum Danshópur að sýna á samverustund Frístund ýmsar myndir
Lesa meira

Síðasta fréttabréf skólaársins

Nú er síðasta fréttabréf skólaársins komið út og má nálgast það hér...
Lesa meira

Skólaslit

Skólaslit vorið 2013 verða þriðjudaginn 4. júní sem hér segir: Nemendur í 1.-8. bekk mæti á sal skólans kl. 13:00.  Skólastjóri flytur stutt ávarp og að því búnu hitta nemendur umsjónarkennara og taka við vitnisburði. Nemendur í 9.-10. bekk mæta kl. 17:00 þar sem verður útskriftarathöfn 10. bekkjar. Foreldrar eru að sjálfsögðu hvattir til að fylgja börnum sínum á skólaslitin.
Lesa meira

Vorhátíð

Vorhátíð Naustahverfis og Naustaskóla 2013 verður haldin fimmtudaginn 30. maí og hefst kl. 16:15 í Naustaborgum. Dagskrá í Naustaborgum kl. 16:15-18:00· Þrautabraut · Andlitsmálning · Stultur, kastveggur o.fl. · Trúðar · Kubb, o.fl. · Leikir · Sápukúlublástur · Hoppukastali · Grillaðar pylsur - ókeypis :) · Ótrúlega gott veður ! Opið hús í Naustaskóla frá kl. 17:30-19:00· Kaffihús á neðri hæð skólans          o Kaffi / djús / mjólk og vöfflur            o Fullorðnir og unglingar 500 kr.             o 6-12 ára 300 kr. · Tombóla – 100 kr. miðinn · Candyfloss á 300 kr. á stöng og 500 kr. í poka · Spákona · Draugahús · Ball fyrir nemendur í 4.-7. bekk kl. 19:00-21:00 - aðgangseyrir 500 kr. (innifalið popp og safi) Allir velkomnir!
Lesa meira

Umræðufundur um heimanám

Í niðurstöðum könnunar meðal foreldra á dögunum stakk í augun að töluvert færri foreldrum í Naustaskóla en annars staðar að meðaltali finnst heimanám nemenda hæfilegt, og er mun stærri hluti hér en annars staðar sem finnst heimanámið of lítið.  Í tilefni af þessu boðum við til umræðufundar mánudaginn 13. maí kl. 17:00.  Fulltrúi frá Háskólanum á Akureyri mun flytja erindi um niðurstöður rannsókna á gagnsemi heimanáms en síðan er hugmyndin að ræða stefnu skólans í málinu og leitast við að komast að niðurstöðu um hvort hún þarfnist breytinga eða nánari útfærslu.  Allir áhugasamir foreldrar eru eindregið hvattir til að mæta. 
Lesa meira

Legó liðið heldur til keppni erlendis

Nú er Legó-liðið okkar lagt af stað í leiðangur til Þýskalands þar sem það keppir á Evrópumótinu í "First Lego League" á móti 53 öðrum liðum frá 35 þjóðlöndum.  Mótið sjálft er 7.-10. maí í Paderborn en okkar fólk verður komið aftur heim mánudaginn 13. maí.  Liðið er með Facebooksíðu þar sem áformað er að setja inn fréttir af stöðu mála en einnig má benda á heimasíðu liðsins - og ennfremur heimasíðu keppninnar...
Lesa meira