Fréttir

Fréttabréf septembermánaðar

Komið er út fréttabréf skólans fyrir september.  Smellið hér...
Lesa meira

Steini lögga í heimsókn hjá 1. bekk

Steini Pé kom í heimsókn í 1. bekkinn í dag og fræddi þau aðeins um umferðarreglurnar og fleiri reglur. Svo var tekin mynd af hópnum í lokin enda er það nú aldeilis glæsilegur hópur, fyrsti bekkurinn okkar!
Lesa meira

Breyting á gjaldskrá

Bæjarráð samþykkti á fundi nú fyrir helgina að hækka gjald fyrir síðdegishressingu í Frístund í 100 kr. pr skipti frá og með 24. ágúst sl. en gjaldið var áður 61 kr.
Lesa meira

Fyrstu dagarnir

Þá eru fyrstu kennsludagarnir í skólanum okkar að baki og starfið hefur farið öldungis prýðilega af stað. Við tókum því frekar rólega fyrstu dagana, kynntumst húsinu, umhverfinu og hvort öðru í rólegheitunum. Í næstu viku virkjum við stundaskrána eins og hún á að vera með smiðjum, sund- og íþróttatímum, samverustundum o.s.frv. Nemendum, foreldrum og starfsfólki eru færðar bestu þakkir fyrir þolinmæðina, góða skapið og þrautseigjuna fyrstu dagana. Hér má sjá nokkrar myndir úr starfinu..... er ekki lífið dásamlegt?!
Lesa meira

Korter í skóla

Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru um kl. 21 að kvöldi 25. ágúst, kvöldið áður en kennsla hefst hjá 1.-3. bekk... Og hér eru nokkrar myndir frá undirbúningi og stöðu húsnæðisins síðustu dagana.
Lesa meira

Nokkur hagnýt atriði

Foreldrum hefur nú verið sendur tölvupóstur með nokkrum hagnýtum atriðum varðandi skólabyrjunina. Sjá nánar hér að neðan..
Lesa meira

Upphaf kennslu

Kennsla hefst hjá 1.-3. bekk kl. 8:15 miðvikudaginn 26. ágúst. Hjá 4.-7. bekk hefst kennsla degi síðar, kl. 8:15 fimmtudaginn 27. ágúst.  Frestunin hjá 4.-7. bekk kemur til vegna seinkunar framkvæmda en öruggt er að á fimmtudag verði allt til reiðu svo að við getum tekið vel á móti öllum okkar nemendum! Við biðjumst velvirðingar á seinkuninni, vonum að hún valdi ekki miklum óþægindum og að fall sé fararheill :)
Lesa meira

Knattspyrnuáhugamenn athugið !

Því miður seinkaði gervigrasinu á völlinn okkar enn eina ferðina, en vonir standa til að gras verði lagt á völlinn á þriðjudag og miðvikudag þannig að síðdegis miðvikudaginn 26. ágúst verði hægt að fara í fótbolta á vellinum... Uppfært 25/8: Enn frekari seinkun; fótbolti á föstudagskvöld :(
Lesa meira

Um skólaheilsugæslu

/*  /*]]>*/ Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda. Þetta er gert með reglubundnum skimunum og eftirliti, fræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál.  Heilsugæsla í skólum er framhald ung- og smábarnaverndar. Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum er um hana gilda. Hún er meðal annars fólgin í reglulegum heilsufarsathugunum, ónæmisaðgerðum, heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf til nemenda, foreldra og starfsfólks skólans.  Hver skóli hefur skólahjúkrunarfræðing og skólalækni jafnframt því sem hvert barn hefur sinn heimilislækni. Heilsugæslu í grunnskólum Akureyrar er sinnt af  hjúkrunarfræðingum og læknum frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.   Hjúkrunarfræðingur Naustaskóla  er  Ingibjörg Ingimundardóttir.
Lesa meira

Fífilbrekka opnar

Nú er nýjasta deild Naustatjarnar, Fífilbrekka, tekin til starfa í húsinu hjá okkur. Krakkarnir komu fylktu liði eftir hádegið 18. ágúst en þá var einmitt 6 ára afmæli Naustatjarnar.  Við bjóðum þau velkomin til okkar og væntum mikils af samverunni og samstarfinu við nágrannaskólann okkar!   
Lesa meira