28.07.2009
/*
/*]]>*/
Gert er ráð fyrir að námsgögn fyrir
nemendur s.s. stílabækur o.þ.h. verði keypt í magninnkaupum á vegum skólans og foreldrar svo rukkaðir fyrir kostnaðinum. Þetta er gert til
þæginda en einnig til að ná fram magnafsláttum. Áætlað er að kostnaður pr. nemanda í 1.-3. bekk verði um 3500 kr. og
þurfa þá foreldrar ekkert að versla til skólans fyrir börn sín nema litla skólatösku og íþróttafatnað (stuttbuxur, bol og
sundföt). Í 4.-7. bekk er gert ráð fyrir að kostnaður pr. nemanda verði um 3000 kr. en þar útvegi nemendur/foreldrar sjálfir skriffæri,
strokleður, reglustiku og vasareikni auk tösku og íþróttafatnaðar.
Ef einhverjir foreldrar óska samt sem áður eftir því að kaupa gögn fyrir sín börn eru viðkomandi beðnir um að snúa sér
til skólans til að fá innkaupalista.
Lesa meira
22.07.2009
Eins og gefur að skilja er margt sem þarf í
einum skóla og sumt tekur nokkurn tíma að byggja upp, má þar nefna gott skólabókasafn. Amtsbókasafnið mun aðstoða okkur við
að koma upp nokkrum bókakosti til að byrja með en einnig biðjum við velunnara skólans að hafa augun opin fyrir því hvort á heimilum kunna
að leynast bækur sem ekki eru notaðar en gætu gagnast á skólasafni, allar slíkar gjafir eru afar vel þegnar. Þá má einnig
nefna að leikföng, kubbar, búningar og fleira af því tagi getur hæglega nýst frístund skólans....
Lesa meira
21.07.2009
Nemendahópurinn er enn að stækka og stefnir
nú yfir 150 nemendur. Ef enn eru einhverjir að velta fyrir sér flutningi í hverfið og skólavist næsta vetur er brýnt að viðkomandi hafi
samband við skólastjóra sem allra fyrst svo unnt sé að endurskoða áætlanir í samræmi við aukinn fjölda nemenda.
Lesa meira
14.07.2009
Nú eru komin á netið drög að
starfsáætlun þar sem finna má ýmsar upplýsingar um skólann. Smellið
hér til að skoða skjalið...
Lesa meira
13.07.2009
Nú eru framkvæmdir við húsnæðið komnar á lokastig og unnið er að frágangi innandyra og utan. Nokkur seinkun hefur orðið á
framkvæmdunum miðað við það sem áætlanir gerðu ráð fyrir og stafar það af ýmsum orsökum. Nú er gert ráð
fyrir að neðri hæð hússins verði nokkurn veginn klár 17. júlí en ljóst að unnið verður að frágangi á efri
hæðinni líklega fram að skólasetningu. Allt hefst þetta þó að lokum og öruggt að skólastarfið getur hafist af fullum
krafti á tilsettum tíma.. Smellið hér til að sjá myndir af
stöðu mála í húsnæðinu.
Lesa meira
24.06.2009
/*
/*]]>*/
Hannað hefur verið merki fyrir skólann sem unnið er út frá orðunum ”naust” og “skóli”. Heildarútliti merkisins svipar til
framhluta skips sem vísar til nafns skólans en einnig til þess að í skólanum eru “allir á sama báti” og
skólasamfélagið er á sameiginlegri siglingu í átt að settum markmiðum. Í merkinu má sjá penna sem hefur vísan í
nám og kennslu. Merkið er örvalaga og vísar til framtíðar, sumir sjá út úr merkinu fugl sem stefnir til himins en það er vel
við hæfi þar sem við í Naustaskóla erum að “hefja okkur til flugs”. Blár er litur trausts og virðingar og hefur einnig vísan til
öryggis. Brúnn litur er jarðbundinn, hann táknar vináttu, jörð, styrk og stöðugleika. Smellið hér til að sjá nánar...
Lesa meira
23.06.2009
/*
/*]]>*/
Þá er ráðningum starfsmanna
lokið í þær stöðuheimildir sem eru fyrir hendi næsta vetur. Eins og flestum er kunnugt var lokið við að ráða í
kennarastöður við skólann fyrr í vor en nú nýverið var ráðið í ýmsar aðrar stöður við skólann, voru
þá eftirtaldir ráðnir til starfa og bjóðum við þau velkomin í hópinn;
Aðalheiður Reynisdóttir iðjuþjálfi
Guðrún Huld Gunnarsdóttir skólaritari
Gyða Björk Aradóttir stuðningsfulltrúi
Harpa Hrönn Gunnarsdóttir skólaliði
Harpa Mjöll Hermannsdóttir skólaliði
Hrafnhildur Stefánsdóttir forstöðumaður frístundar
Hugrún H. Sigurbjörnsdóttir skólaliði
Ingólfur Valur Ívarsson umsjónarmaður
Kolbrún Sigurðardóttir skólaliði
Marcela Andrea Ceron skólaliði
Sandra Mjöll Tómasdóttir skólaliði
Heildaryfirlit yfir starfsmenn skólans má sjá hér
Lesa meira
23.06.2009
Nú nýverið var gefin út reglugerð
um heimakennslu á grunnskólastigi en skv. nýjum grunnskólalögum geta foreldrar í vissum tilfellum óskað eftir að fá að annast
sjálfir kennslu barna sinna. Reglugerðin er svohljóðandi;
Lesa meira
11.06.2009
Hverfisnefnd Naustahverfis stendur fyrir
hverfishátíð fimmtudaginn 11. júní nk. kl. 17:00-19:00 í Naustaborgum ofan Sómatúns. Á dagskránni verða þrautir,
leikir, andlitsmálun, hestar, grill o.fl. en auk þess verður opið hús í Naustaskóla kl. 18:30-20:00 þar sem færi gefst á að skoða
húsnæðið. Smellið hér til að sjá auglýsingu um
hátíðina..
Lesa meira
03.06.2009
Afgreiðsla umsókna um stöður ritara og
umsjónarmanns dregst lítillega en umsækjendur um þau störf eiga von á svörum fyrir helgina. Þegar niðurstaða í þeim málum
liggur fyrir hefst vinna við úrvinnslu umsókna um stöður iðjuþjálfa, forstöðumanns frístundar, skólaliða og
stuðningsfulltrúa en ljóst er að sú vinna tekur nokkurn tíma...
Lesa meira