Fréttir

Ágúst ráðinn skólastjóri

Ágúst Frímann Jakobsson hefur verið ráðinn skólastjóri Naustaskóla. Ágúst útskrifaðist sem grunnskólakennari 1995 og með Dipl. Ed. gráðu í stjórnun frá KHÍ 2003. Hann starfaði sem kennari frá 1995-1998.  Var aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Hvammstanga / Grsk. Húnaþings vestra 1998-2002, deildarstjóri við Giljaskóla 2002-2003, aðstoðarskólastjóri við Brekkuskóla 2003-2006 og skólastjóri við Grsk. Húnaþings vestra frá 2006.
Lesa meira

Framkvæmdir hefjast

Þann 27. maí 2008 var fyrsta skóflustungan tekin að byggingu Naustaskóla. Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, tók fyrstu skóflustunguna en henni til aðstoðar voru börn á leikskólanum Naustatjörn. Við sama tilefni var undirritaður samningur milli Fasteigna Akureyrarbæjar og SS Byggir ehf. um byggingu skólans.
Lesa meira