03.06.2010
Við Naustaskóla er laust til umsóknar starf
skólaliða frá og með næsta hausti. Starf skólaliða er fjölbreytt og felur í sér gæslu og aðstoð við nemendur í
starfi og leik á vegum skólans, störf í Frístund (síðdegisgæslu), við matarafgreiðslu, ræstingar o.fl.
Leitað er að aðila sem:
Hefur áhuga á og reynslu af að starfa með börnum og á auðvelt með samskipti við börn.
Hefur til að bera góða samskiptahæfni.
Getur unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði.
Hefur áhuga á að taka þátt í mótun nýs skóla og er tilbúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni.
Lesa meira
05.06.2010
Laugardaginn 5. júní kl. 14.00 boðar skólanefnd Akureyrarbæjar til samkomu í Listasafninu þar sem sjö nemendum og átta kennurum
og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar verður veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Þetta er í fyrsta sinn sem
skólanefnd stendur fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta í Listasafnið laugardaginn 5. júní kl. 14.00 og vera viðstaddir afhendingu
viðurkenninganna .
Verða nöfn þeirra einstaklinga og verkefna sem hljóta viðurkenningu þetta árið kunngjörð á samkomunni.
Lesa meira
04.06.2010
Skólastarfi á þessu fyrsta
starfsári Naustaskóla verður slitið föstudaginn 4. júní. Allir nemendur mæta kl. 13:00 á sín heimasvæði, hitta
umsjónarkennara, taka á móti námsmati, skólastjóri segir nokkur orð og svo halda nemendur út í sumarið. Foreldrar eru að
sjálfsögðu einnig hjartanlega velkomnir á skólaslitin.
Lesa meira
31.05.2010
Út er komið fréttabréf
júnímánaðar. Meðal efnis er dagskrá vorhátíðar, skóladagatal næsta vetrar o.fl. Smellið hér til að opna fréttabréfið..
Lesa meira
03.06.2010
/*
/*]]>*/
/*
/*]]>*/
Vorhátíð Naustaskóla og
Naustahverfis verður haldin fimmtudaginn 3. júní og hefst kl. 16:15 með "brekkusöng" í Naustaborgum.
Afþreying í boði í Naustaborgum kl. 16:15-18:00
Þrautabraut
Andlitsmálning
Stultur, kastveggur o.fl.
Trúðar
Naustahverfismót í Kubbi
Boccia
Leikir
Sápukúlublástur
Flugdrekar
Grillaðar pylsur
Opið hús í Naustaskóla frá kl. 17:30
Kaffihús á neðri hæð skólans
Kaffi / safi / mjólk og vöfflur
Fullorðnir 300 kr.
6-16 ára 200 kr.
Tombóla – 50 kr. miðinn
Föndurborð
Spákona
Draugahús
Sýningar á verkum nemenda
Söngvakeppni foreldra og barna (feðgar/mæðgur/feðgin/mæðgin) í sal skólans kl. 18:00 - Foreldrar og börn á öllum aldri geta skráð sig til keppni (það er einfaldlega gert með því að finna lag sem báðir
aðilar kunna, og mæta á æfingu í skólanum einhvern tímann milli 17:00 og 18:00)
Ball fyrir nemendur í 1.-3. bekk kl. 18:30-19:45 (200 kr. aðgangseyrir)
Ball fyrir nemendur í 4.-7. bekk kl. 20:00-22:00 (200 kr. aðgangseyrir)
Lesa meira
27.05.2010
Fimmtudaginn 27. maí ætlum við að bjóða tilvonandi nemendum 1. bekkjar ásamt forráðamönnum þeirra í heimsókn til að
hitta verðandi kennara og kynna sér skólann. Öllum forráðamönnum innritaðra barna í árgangi 2004 ætti að hafa borist
svohljóðandi tölvupóstur á dögunum:
Lesa meira
25.05.2010
Stjórn Foreldrafélags Naustaskóla boðar til
aðalfundar félagsins þriðjudaginn 25. maí kl. 17:00 í Naustaskóla. Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Kosning formanns og annarra stjórnarmanna
Skýrsla skólaráðs
Kosning fulltrúa í skólaráð
Önnur mál
Vonumst til að sjá sem flesta
Stjórnin
Lesa meira
06.05.2010
Í dag var afhjúpað listaverk sem krakkarnir í Frístund og Fífilbrekku unnu sameiginlega. Myndin sýnir hendur þessara fyrstu nemenda okkar, og
mun hún prýða húsnæðið, vonandi um aldur og ævi.. Krakkarnir héldu svo upp á daginn með því að gæða
sér á skúffukökunni sem þau voru búin að baka af þessu tilefni, sannkölluð hátíð í bæ! Smellið hér til að sjá myndir frá undirbúningnum og athöfninni.
Lesa meira
05.05.2010
Endilega skoðið nýjar myndir frá skólastarfinu okkar í vetur - Lífið í skólanum 2010
Lesa meira
03.05.2010
Fréttabréf maímánaðar er
komið út. Smellið hér til að lesa það..
Lesa meira