Dagana 15. - 16. október voru haldnir þemadagar í Naustaskóla undir heitinu „Draumaskólinn minn“. Markmiðið var að gefa nemendum tækifæri til að láta rödd sína heyrast um daglegt starf skólans og koma með eigin hugmyndir um hvernig Naustaskóli eigi að vera og hvernig skólinn getur þróast.
Nemendum var skipt í aldursblandaða hópa og var unnið þvert á aldursstig í skólanum sem gékk ótrúlega vel. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel hóparnir unnu saman og hvað eldri nemendur sýndu mikla ábyrgð, tóku vel á móti yngri nemendum og héldu utan um þá í gegnum dagana. Þetta skapaði góða samvinnu og sterk tengsl milli aldurshópa sem fá ekki alltaf tækifæri til að vinna saman í daglegu skólastarfi.
Á stöðvunum fengu nemendur að hanna, skapa, ræða saman og leysa verkefni, og settu fram eigin hugmyndir um skólastarfið. Á sumum stöðvum var unnið með raunverulegar áskoranir úr daglegu skólastarfi og nemendur hvattir til að hugsa í lausnum og velta fyrir sér hvernig gera mætti skólaumhverfið betra fyrir ólíka nemendur. Afraksturinn var fjölbreyttur, svo sem líkön, teikningar, veggspjöld, hugtakakort og ýmsar tillögur, auk annarra skapandi leiða til að koma hugmyndum á framfæri.
Hóparnir unnu á fimm stöðvum:
Naustaskóli: Bygging og skólalóð. Nemendur hönnuðu skólabygginguna og umhverfið í kringum hana. Þeir veltu fyrir sér aðstöðu til náms, leiks, hreyfingar og samveru, en einnig rólegum svæðum og aðgengi fyrir alla nemendur. Hugmyndirnar tóku meðal annars á sig mynd teikninga eða líkana.
STEM, uppfinningar og tækni. Hér mættust vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði þar sem nemendur fengu það verkefni að búa til brú. Nemendum var skipt í hópa og gerðu hóparnir margar mismunandi útfærslur af brúm, og svo var burðarþol hverrar brúar kannað.
Nám, líðan og skólasamfélag. Nemendur ræddu hvernig þeir læra best og hvað hjálpar þeim að líða vel í skólanum. Þeir skoðuðu ólíkar námsleiðir, góð samskipti og hvernig við tökum vel á móti nýjum nemendum og tryggjum að enginn verði út undan. Úr urðu hugmyndir um skólasamfélag þar sem allir nemendur fá að taka þátt og njóta sín.
Skóladagurinn, stundaskráin og frímínútur. Hvernig lítur draumaskóladagurinn út? Nemendur leituðu að góðu jafnvægi milli náms, hreyfingar, sköpunar, samveru og hvíldar. Sérstaklega var’ hugað að fjölbreyttum valkostum í frímínútum, svo allir nemendur finni eitthvað við sitt hæfi.
Draumamatsalurinn og matarmenning. Nemendur skoðuðu hvernig gera megi matartímann að notalegri stund. Nemendur veltu fyrir sér umhverfi matsalarins, hávaða, skipulagi, borðsiðum, fjölbreyttum matarvenjum og leiðum til að draga úr matarsóun. Einnig fengu nemendur að gera draumamatseðilinn sinn.
Kennarar lögðu mikla vinnu í undirbúning og framkvæmd stöðvanna og sýndu bæði sköpunargáfu og hugmyndaauðgi við útfærslu verkefnanna. Verkefnin gáfu nemendum tækifæri til að nýta ólíka styrkleika og taka þátt á mismunandi hátt. Nemendur tóku verkefnin vel, sýndu mikinn áhuga og voru dugleg að taka þátt. Það var áberandi hversu mikið líf, samvinna og gleði var í húsinu þessa daga.
Margar áhugaverðar hugmyndir komu fram sem geta nýst áfram í umræðu um þróun skólastarfsins. Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir frábæra þátttöku og tvo skemmtilega daga.
Hér fyrir neðan koma myndir af dögunum, einnig má nálgast þær með því að smella á þennan tengil:
|
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is