Skólasetning Naustaskóla mánudaginn 24. ágúst

Skólasetning Naustaskóla verður mánudaginn 24. ágúst nk:
Kl. 09:00 nemendur í 2.-5. bekk
Kl. 10:00 nemendur í 6.-10. bekk
Á skólasetningunni mæta nemendur fyrst á sal og hitta síðan umsjónarkennara sína, fá stundaskrá og fræðast um starfið í vetur.
Kennsla hjá börnum í 2.-10. bekk hefst þriðjudaginn 25. ágúst samkvæmt stundarskrá.
Hjá 1. bekk verða viðtöl 24. og 25. ágúst og kennsla hefst hjá þeim miðvikudaginn 26. ágúst samkvæmt stundarskrá. Foreldrar 1. bekkjar fá bréf í næstu viku með boðun í viðtölin.
Frístund opnar þriðjudaginn 25. ágúst