Útskrift 10. bekkjar Naustaskóla fór fram með glæsibrag fimmtudaginn 5. júní 2025
Það var sannarlega hátíðleg stund þegar nemendur kvöddu skólann sinn eftir farsælt nám. Bryndís Björnsdóttir skólastjóri setti athöfnina með hlýjum orðum til útskriftarnemenda. Nemendur úr 10. bekk glöddu gesti með frábærum söngatriðum úr söngleiknum „Með allt á hreinu" sem vakti verðskuldað lof.
Í ræðu sinni lagði Andri Snær kennari áherslu á mikilvægi þess að hafa jákvætt hugarfar í lífinu. Hann sagði það líka einstakt hversu margir nemendur ætla að fara sínar eigin leiðir í framhaldsnámi, frekar en að fylgja fjöldanum.
Nemendur deildu skemmtilegum minningum úr skólagöngu sinni og sýndu myndband frá eftirminnilegu skólaferðalagi vorsins.
Það var einstaklega falleg stund þegar Bryndís skólastjóri las upp persónulegar umsagnir um hvern og einn nemanda, sem samnemendur þeirra höfðu skrifað. Í lok athafnarinnar afhentu Bryndís og meðstjórnendur hennar, þær Helga Ósk og Þuríður, nemendum viðurkenningarskjöl, árbækur og rósir. Það er alltaf erfitt að kveðja nemendur sína á þessum tímamótum en um leið fögnum við því hversu sjálfstæð þau eru og fær um að taka næstu skref.
Að athöfn lokinni var boðið upp á veglegt kaffihlaðborð sem foreldrar 9. bekkjar höfðu útbúið og að sjálfsögðu voru teknar hópmyndir af útskriftarhópnum til minningar um þennan merkisdag.
Við óskum þessum frábæru ungmennum velfarnaðar á nýjum vegferðum og þökkum þeim fyrir ógleymanlegar stundir í Naustaskóla. Framtíðin er sannarlega björt hjá þessum efnilegu einstaklingum.
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is