Glæsileg forkeppni Upphátt í 7. bekk

Í dag fór fram forkeppni Upphátt, upplestrarkeppni 7. bekkjar, og var mikil eftirvænting í loftinu. Nemendur lásu valda sögukafla og ljóð af mikilli list á sal skólans og stóðu sig öll með stakri prýði. Undirbúningurinn var í öruggum höndum kennaranna Unnar Óskar Unnsteinsdóttur og Dagnýjar Hlínar Rafnsdóttur, sem unnu ötullega með hópnum í vetur.

Dómnefndin, skipuð Örnu Garðarsdóttur, Örnu Ívarsdóttur og Heimi Erni Árnasyni, átti erfitt verk fyrir höndum en valdi að lokum þau Gísla Örn Ólafsson og Hrafnhildi Guðnýju Karlsdóttur til áframhaldandi þátttöku. Við óskum þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur og hvetjum þau til dáða í aðalkeppninni í Brekkuskóla þann 10 mars. kl. 15:00.

Áfram krakkar!

Hér má sjá fleiri myndir