Á dögunum átti sér stað stórglæsilegur viðburður í Naustaskóla þegar nemendur í 10. bekk opnuðu dyrnar að „600 Mathöll“. Viðburðurinn var mikilvægur liður í fjáröflun bekkjarins en var um leið mikil hátíð fyrir bragðlaukana. Ljóst var að eftirvæntingin í skólasamfélaginu var mikil, enda hefur viðburðurinn verið vel sóttur frá upphafi en þetta var í þriðja skipti sem hann var haldinn. Gestir mættu því snemma og af miklum áhuga til að tryggja að þeir gætu smakkað á sínum uppáhaldsréttum áður en allt yrði uppselt.
Viðburðurinn var lokahnykkurinn í séraklega metnaðarfullu samstarfi á milli kennara og nemenda. Þarna sáu gestir hvernig skilin á milli bóklegs og verklegs náms hreinlega gufuðu upp í hita bakarofnanna. Verkefnið var frábært dæmi um hvernig hægt er að tengja skólastarf við raunveruleikann.
Á meðan nemendur matreiddu af mikilli list, mátti lesa áhugaverðar staðreyndir og rannsóknir á fræðsluskiltum sem prýddu rýmið og tengdu saman tungumálakennslu, rannsóknarstörf og verklegt nám. Úr varð glæsileg heild sem sýndi sköpunargáfu og vinnusemi nemendanna.
Gestum var boðið í sannkallað matarferðalag um allan heim og var lagt mikið í hvern og einn rétt. Boðið var upp á dýrindis kræsingar frá sex ólíkum löndum: Spáni, Ítalíu, Japan, Bandaríkjunum, Mexíkó og Tyrklandi. Hvort sem fólk sóttist eftir krydduðum réttum eða ferskum framandi brögðum, þá fann hver eitthvað við sitt hæfi. Til viðbótar við þetta glæsilega úrval var starfrækt ljómandi gómsætt bakarí þar sem ilmurinn af nýbökuðu sætabrauði fyllti skólann og lokkaði gesti að borðunum.
Það var virkilega hvetjandi að sjá hversu mikla alúð og fagmennsku nemendur lögðu í verkefnið. Samvinna hópsins var til fyrirmyndar og stemmingin í skólanum var einstök. Viðburðurinn sýndi svo ekki varð um villst hvað hægt er að gera þegar kraftmiklir nemendur og hvetjandi kennarar vinna saman að sameiginlegu markmiði. Við óskum 10. bekk innilega til hamingju með þennan flotta árangur og þökkum öllum sem mættu og studdu við bakið á þessu frábæra verkefni! Það verður spennandi að fylgjast með viðburðinum vaxa næstu árin, því þar sem virkt ímyndunarafl og verkvit koma saman: þá er gaman.
Hér má sjá myndir frá Mathöllinni
|
Hólmatún 2 | 600 Akureyri Sími: 460 4100 Frístund: 460 4111 Netfang: naustaskoli@akureyri.is
|
|
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 460 4100 / naustaskoli@akureyri.is