    <language>is</language>
Naustaskóli
Skólaslit Naustaskóla þriðjudaginn 9. júní
      <description><![CDATA[Skipulagið er eftirfarandi:
Kl. 09:00 mæta nemendur 1. 3. 5. 7. og 9. bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.
Kl. 11:00 mæta nemendur 2. 4. 6. og 8. bekkjar á sal skólans og fara síðan inn á sín svæði.
Frístund er lokuð á skólaslitadaginn.
Útskrift 10. bekkjar fer fram á sal skólans kl. 14:30]]></description>
Útskrift úr ART námskeiði í 7. bekk
Hinn 20. maí síðastliðinn átti sér stað sérstaklega ánægjulegur viðburður hér við skólann þegar nemendur í 7. bekk útskrifuðust formlega úr tólf vikna ART námskeiði. Í námskeiðinu lærðu krakkarnir dýrmæta færni á borð við félagsfærni, sjálfstjórn og ...]]></description>
Skólahreysti
Nemendur Naustaskóla keppa í Skólahreysti á morgun, miðvikudaginn 29. apríl. 
Keppnin fer fram í íþróttahöllinni og hefst kl. 20. Hvetjum alla til þess að mæta á svæðið og sýna þeim stuðning
Húsið opnar kl. 19:00. Þeir sem vilja geta líka horft á k...]]></description>
Hæfileikakeppni Akureyrar 2026
Hæfileikakeppni Akureyrar 2026 verður haldin þann 22.apríl kl 16-18. Endilega skoðið þetta með börnunum ykkar og hjálpið þeim að skrá sig. Skráning fer fram hér: https://eu.jotform.com/210744037735353 og hefur verið farmlengd til 20.apríl.
Hæfileikakeppni Akureyrar er fastur liður í árlegri barnamenningarhátíð bæjarins. Hæfileikakeppni Akureyrar er árlegur viðburður fyrir börn í 5. - 10. bekk. Eins og orðið hæfileikakeppni gefur til kynna er um að ræða fjölbreytta keppni enda geta hæfileikar verið afar fjölbreyttir. Dæmi um atriði sem gætu skráð sig til leiks geta verið á sviði sönglistar, leiklistar, danslistar, töfrabragða og hljóðlistar svo eitthvað sé nefnt. Atriðin geta verið einstaklingsatriði, paraatriði eða hópatriði.
Með viðburðinum viljum við vinna með styrkleika og og hæfileika barna og unglinga. Slíkur viðburður getur verið vettvangur fyrir ungt fólk á Akureyri til þess að koma sér á framfæri en fyrst og fremst er um að ræða mikilvægan stökkpall fyrir einstaklinga til þess að stíga út fyrir þægindarammann sinn.
Skipulag árshátíðar á morgun, fimmtudag
      <description><![CDATA[Nú er allt að verða tilbúið fyrir árshátíðina okkar á morgun. Í fréttabréfi mánaðarins var skipulag dagsins sent út varðandi sýningar og veitingar. https://app.smore.com/n/f0bnw
Hlökkum til að fá ykkur í heimsókn!]]></description>
Upplestrarkeppnin Upphátt
Upplestrarkeppnin Upphátt verður haldin í Brekkuskóla kl. 15 í dag! 
Fyrir okkar hönd keppa Gísli Örn og Hrafnhildur Guðný 
Óskum þeim góðs gengis! ]]></description>
Glæsileg forkeppni Upphátt í 7. bekk
Í dag fór fram forkeppni Upphátt, upplestrarkeppni 7. bekkjar, og var mikil eftirvænting í loftinu. Nemendur lásu valda sögukafla og ljóð af mikilli list á sal skólans og stóðu sig öll með stakri prýði. Undirbúningurinn var í öruggum höndum kennarann...]]></description>
Skóladagatal 2026-2027
Glitrum saman á morgun, föstudaginn 27. febrúar
Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna 
Í tilefni af deginum langar okkur að klæðast einhverju glitrandi
eins og glimmeri og palíettum. Gaman væri ef nemendur tækju
þátt í deginum. Allt sem er litríkt og glitrar er skemmtilegt og
minnir okkur á að við erum alskonar.
Dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna er föstudaginn 27. febrúar]]></description>
600 Mathöll - matarferðalag um heiminn
Á dögunum átti sér stað stórglæsilegur viðburður í Naustaskóla þegar nemendur í 10. bekk opnuðu dyrnar að „600 Mathöll“. Viðburðurinn var mikilvægur liður í fjáröflun bekkjarins en var um leið mikil hátíð fyrir bragðlaukana. Ljóst var að eftirvænting...]]></description>
600 Mathöll - matarferðalag um heiminn
Nemendur í 10. bekk í Naustaskóla bjóða gestum og gangandi á fjáröflunarviðburðinn: 600 Mathöll. 
Fimmtudaginn 5. febrúar frá kl. 17 - 20 (lokum fyrr ef maturinn klárast)
Viðburðurinn er lokahnykkurinn í metnaðarfullu samstarfi kennara og nemenda þ...]]></description>
Minnum á starfsdaginn miðvikudaginn 21. janúar
      <description><![CDATA[Starfsdagur miðvikudaginn 21. janúar og því enginn skóli. 
Frístund verður lokuð fyrir hádegi. 
Frístund opnar kl. 13:00 ]]></description>
Ilmandi sköpunargleði í Listasafni Akureyrar
Á dögunum áttu nemendur í 4-5. bekk dásamlega stund þegar þeir héldu í heimsókn í Listasafnið. Tilefnið var sérstaklega spennandi, því hópurinn tók þátt í lifandi vinnustofu undir dýrmætri leiðsögn Sunnu Svavarsdóttur, sem var gestalistamaður safnsins. Það ríkti mikil eftirvænting í hópnum þegar komið var á staðinn og verkefni dagsins var kynnt fyrir öllum viðstöddum.]]></description>
Jólin í Naustaskóla
Í Naustaskóla er alltaf jólaþemadagur í desember. Þá eru settar upp fjölbreyttar stöðvar, nemendur fara á milli stöðva og velja sér viðfangsefni. Jólaþemadagurinn í ár gekk mjög vel og voru nemendur almennt sáttir og sælir með daginn.  Hurðaskreyting...]]></description>
Litlu jól - skipulag
      <description><![CDATA[Litlu jólin verða haldin í skólanum nk. föstudag en þá mæta nemendur í 1.-7. bekk kl. 08:10.
4. bekkur sýnir helgileik kl. 08:30 á sal og svo ganga allir í íþróttasalinn þar sem verður dansað kringum jólatré.
Kl. 09:30 fara allir inn á sín svæði og halda stofujól með sínum kennurum.
Kl. 10:10 fara nemendur heim í jólafrí en frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir.
Nemendur í 8.-10. bekk halda sín Litlu jól fimmtudaginn kl. 17:30 með sínum kennurum.]]></description>
Jólaþemadagur 16. desember - myndir
Hér má sjá nokkrar myndir frá skemmtilegum jólaþemadegi í dag, þriðjudaginn 16. desember, þar sem nemendur unnu á stöðvum um allan skóla við ýmiskonar föndur og skreytingar. Það má með sanni segja að skólinn okkar sé mikið og fallega skreyttur! Efir hátíðarmat í hádeginu voru svo sungin nokkur jólalög undir stjórn Björns Vals Gíslasonar. 
Handboltamót hjá 5. og 6. bekk
Í gær var haldið skólamót í handbolta í KA heimilinu fyrir 5. og 6. bekk í skólum bæjarins. Naustaskóli mætti með nokkur lið og stóðu sig vel, lið drengja í 5. bekk náðu öðru sæti í sínum flokki. Það var mikið fjör og stemming eins og sjá á á meðfylgjandi myndum. ]]></description>
Nemendadagur 2025
Nemendadagurinn var í dag og var margt brallað að venju. Alls kyns stöðvar voru settar upp víðsvegar um skólann þar sem nemendur fengu að spreyta sig við hinar og þessar þrautir og verkefni. Meðal stöðva var til dæmis fjársjóðsleit, skutlukeppni, limbó, fígúrugerð og skotfimi. Íþróttakeppnir voru haldnar milli starfsfólks og nemenda og var keppt í fótbolta, körfubolta og blaki og höfðu starfsmenn betur eftir harða keppni í öllum greinum. Hápunktur dagsins var svo hæfileikakeppni nemenda og voru mjög mörg atriði á sviðinu sýnd fyrir fullum sal. Dómnefndin, sem var skipuð starfsfólki og nemendum úr 10. bekk, átti fullt í fangi með að dæma atriðin og valdi að lokum í þrjú efstu sætin. Í þriðja sæti voru drengir úr 10. bekk, þeir Haukur, Siggi Nói, Ísak, Kristdór og Gabríel. Í öðru sæti var Bríet Tinna með dansatriði og í fyrsta sæti var trommuleikarinn Júlíus. Hér má sjá myndir frá þessum skemmtilega degi.]]></description>
Árangursríkir þemadagar
Nú eru árangursríkir og skemmtilegir dagar að baki!
Í síðustu viku voru þemadagar, en þemað í ár var námsaðlögun og skapandi nám í gegnum upplýsingatækni og listgreinar. Starfsfólk skólans lagði mikið kapp í það að setja upp stöðvar sem opnuðu augu ...]]></description>
Vegna kvennafrídags á morgun
Kæru foreldrar
Á morgun 24. október er kvennafrídagurinn 50 ára og haldið verður upp á það með samstöðufundi á Ráðhústorgi kl. 11:15. Mikil hvatning er í samfélaginu til kvenna og kvára að taka þátt í hátíðarhöldunum og er vilji sveitarfélagsins að gera sem flestum kleift að sækja fundinn. Vegna þess mun Naustaskóli fella niður kennslu hjá öllum bekkjum kl. 10:50. Við óskum eftir því að foreldrar barna í 1. – 3. bekk sæki börnin sín í skólann.
Frístund er lokuð eftir hádegi vegna manneklu.
Stjórnendur Naustaskóla