Hlutverk:
Hlutverk skólans er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám. Allir skulu öðlast alhliða menntun og fá hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga. Skólinn er mennta- og þjónustustofnun sem sinnir hlutverki sínu í náinni samvinnu við heimilin með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda.
Framtíðarsýn:
Naustaskóli verði framsækinn 500 nemenda grunnskóli, kunnur fyrir kraftmikið og vel heppnað skólastarf með sérstakri áherslu á að koma til móts við hvern og einn nemanda. Nemendur skólans verði lífsglaðir, sjálfstæðir og sjálfsöruggir. Skólinn eigi gott samstarf við heimilin og samfélagið.
Áherslur skólans;
- Námsaðlögun
Markmið:
Skólinn mæti þörfum nemenda í námi
Nemendur verði sjálfstæðir og taki ábyrgð á námi sínu
Allir nemendur taki stöðugum framförum
Leiðir:
Einstaklingsáætlanir
Fjölbreyttar kennsluaðferðir
Þemavinna / smiðjur
Námsstöðvar
Áhugasviðsvinna
Reglubundið og fjölbreytt mat á vinnu nemenda
Markviss starfsþróun og endurmenntun starfsmanna
- Athvarf
Markmið:
Nemendum líði vel í skólanum
Forráðamenn og nemendur eigi aðgang að ráðgjöf og stuðningi
Skólinn sé miðstöð fyrir íbúa hverfisins
Leiðir:
Vingjarnlegt og áhugavert umhverfi
Góður aðbúnaður og aðstaða
Góður og hollur matur
Vel menntað og vingjarnlegt starfsfólk
Gott samstarf við íbúa, félög og fyrirtæki í hverfinu
- Umhyggja og virðing
Markmið:
Samskipti í skólasamfélaginu byggist á virðingu og umhyggju
Nemendur læri að bera virðingu og umhyggju fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfinu
Leiðir:
Jákvæð agastefna – samstaða um gildi
Markviss notkun bekkjafunda
Aldursblöndun nemenda / sveigjanleg hópaskipting
Jafnréttisstefna
Umhverfisstefna
- Samvinna
Markmið:
Starfsmenn, foreldra og nemendur taki þátt í ákvörðunum
Foreldrar séu virkir þátttakendur í námi barna sinna
Skólinn lúti markvissri stjórnun sem byggi á kunnri
stefnu
Leiðir:
Gott upplýsingastreymi
Skólaþing
Teymiskennsla
Mannauðurinn innan skólans sé virkjaður
Foreldrar virkjaðir til þátttöku
- Táp og fjör
Markmið:
Nemendur og starfsmenn séu glaðir í starfi sínu innan skólans
Að það sé gaman í skólanum!
Skólinn stuðli að hreysti nemenda
Leiðir:
Fjölbreytni og sveigjanleiki í starfinu
Nægileg hreyfing og útivera fyrir nemendur
Söngur og leikur ríkulegur þáttur í skólastarfinu
- Allir með!
Í námi
Í starfi
Í leik
Í ákvörðunum


