Við Naustaskóla starfar skólaráð samkvæmt 8. gr. grunnskólalaga og reglugerð um skólaráð (sjá tengla hér til hliðar)
Í skólaráði Naustaskóla veturinn 2011-2012 sitja eftirtaldir:
Skólastjórnendur: Ágúst Jakobsson (agust@akureyri.is) og Bryndís Björnsdóttir (dis@akmennt.is)
Fulltrúar foreldra: Sara Stefánsdóttir (saras@unak.is) og Vaka Óttarsdóttir (vaka@mentor.is)
Fulltrúar starfsfólks: Brynja D. Hermannsdóttir (brynjadogg@akmennt.is), Harpa Mjöll
Hermannsdóttir(harpamjoll@akmennt.is) og Sigurlaug Jónsdóttir (sigurlaug@akmennt.is)
Fulltrúi hverfisnefndar Naustahverfis: Björk Guðmundsdóttir (bjork@vma.is)
Fulltrúar nemenda: Pétur Már Guðmundsson og Hrannar Þór Rósarsson
Í stuttu máli um skólaráð:
Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélagsins, það skal, auk skólastjóra, skipað fulltrúum
foreldra, nemenda, kennara, annarra starfsmanna og fulltrúa grenndarsamfélags sem í okkar skóla er fulltrúi frá hverfisnefnd.
Skólaráð fundar mánaðarlega (1. miðvikudag í hverjum mánuði). Hlutverk þess skv. lögum er að taka þátt í
stefnumörkun fyrir skólann, að ræða og veita álit á málum eins og skólanámskrá, starfsáætlun, hvers kyns breytingum
á skólahaldi, aðbúnaði og velferð nemenda, húsnæðis- og öryggismálum o.s.frv. Þá fjallar ráðið einnig
um erindi frá ýmsum aðilum (t.d. skólanefnd, foreldrum, nemendaráði o.s.frv.) og veitir umsagnir ef þess er óskað. Skólaráð er
því mikilvægur þáttur í því að koma sjónarmiðum sem flestra á framfæri og tryggja samráð við
þá sem koma að málefnum skólans áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar.


