Við Naustaskóla starfar
Skrifstofa náms- og starfsráðgjafa er á annari hæð skólans. Allir nemendur og foreldrar eru hvattir til að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa. Hægt er að bóka tíma í gegnum síma 4604100 eða senda tölvupóst á allas@akmennt.is. Beinn sími námsráðgjafa er 4604106.
Helstu verkefni náms- og starfsráðgjafa eru:
- Að standa vörð um velferð nemenda og starfa í þágu þeirra.
- Leita lausna í málum nemenda.
- Að vera trúnaðarmaður og málsvari nemenda.
- Gæta þess að nemendur búi við jafnrétti og að jafnréttis sé gætt gagnvart þeim innan skólans.
- Móttaka nýrra nemenda.
- Leiðsögn um nám og skipulag.
- Bæta vinnubrögð og námstækni.
- Aðstoða nemendur við að átta sig á hvar áhugasvið þeirra liggja.
- Stuðningur og ráðgjöf vegna erfiðleika í námi eða utan þess.
- Hjálpa nemendum að leita sér aðstoðar jafnt innan sem utan skóla.
- Sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu.
Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda, að undanskyldum ákvæðum í lögum um barnavernd nr. 80/2002.


