Velkomin á heimasíđu Naustaskóla

Heimasíða Naustaskóla á Akureyri

Jákvćđur agi

Naustaskóli leggur til grundvallar uppeldisstefnu sem nefnist “Positive discipline” en hún er náskyld Uppbyggingarstefnunni sem margir skólar hér á landi eru að innleiða.  Þessar stefnur eiga það sameiginlegt að vera þróaðar út frá svokallaðri “sjálfsstjórnarkenningu”, sem felur það í sér að horft er á orsakir hegðunar og það gildismat sem býr að baki þegar leitast er við að ná fram leiðréttingu, frekar en að reyna einfaldlega að breyta hegðuninni með umbun og refsingu eins og lengi hefur tíðkast með ýmsum atferlismótunarkerfum. Hugmyndafræðin “jákvæður agi” gengur út á það að móta skólabrag sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu. Við leitumst við að fá nemendur til að tileinka sér þrjú viðhorf og fjórar tegundir af hæfni. Þessir hlutir eru m.a. kenndir og þjálfaðir markvisst með bekkjarfundum. Þetta eru:

· Sjálfstraust. (Viðhorf nemanda: "Ég get")  Til að þróa með sér sjálfstraust þurfa nemendur öruggt andrúmsloft þar  sem þeir geta prófað sig áfram með nám og hegðun án þess að felldir  séu harðir dómar um velgengni eða mistök, rétt eða rangt. Bekkjafundir geta búið til öruggt umhverfi þar sem nemendur geta mátað  hegðun sína í umburðarlyndu andrúmslofti, uppgötvað hvernig hún snertir  aðra og kannað möguleika á breytingum.

· Að tilheyra (Viðhorf nemanda: "Ég tilheyri og mín er þörf").  Til að öðlast tilfinningu fyrir mikilvægi í samfélaginu þurfa nemendur að  upplifa að deila tilfinningum, hugsunum og hugmyndum með öðrum og að þær séu teknar alvarlega. Á bekkjafundum hafa allir tækifæri til að  láta sínar skoðanir og tillögur  í ljós. Nemendur læra að þeir geta lagt sitt  af mörkum við að finna  lausnir og geta fylgt völdum lausnum eftir á  áhrifaríkan hátt.

· Áhrif. (Viðhorf nemanda: "Ég hef áhrif á umhverfi mitt og líf").  Til að nemendur öðlist tilfinningu fyrir áhrifum og valdi yfir þeirra eigin  lífi,  þurfa þeir að upplifa umhverfi sem leggur áherslu á áreiðanleika og  hvatningu.  Bekkjarfundir búa til aðstæður þar sem nemendur geta upplifað að það sé í lagi að gera mistök og að hægt sé að læra af þeim.Á bekkjarfundum geta nemendur lært að það er í lagi að taka ábyrgð á  mistökum sínum því að þeir verða ekki dæmdir en fá þess í stað  aðstoð  við að kanna möguleika til að læra af þeim. Þeir læra að  hætta að  kenna öðrum um (kennarinn gaf mér F) og fallast á eigin  ábyrgð (ég fékk  F af því að ég kláraði ekki verkefnið svo ég fengi hærri  einkunn). Þeir  læra einnig að þó þeir geti ekki stjórnað öllu sem gerist  geta þeir  stjórnað eigin viðbrögðum við því sem gerist.

· Innsæi / tilfinningagreind. Hæfni nemanda til að skilja tilfinningar og að geta notað þann skilning  til  að þróa sjálfsaga, sjálfsstjórn og að læra af reynslunni. Bekkjarfundir hjálpa nemendum að gera greinarmun á tilfinningum og  athöfnun / afleiðingum athafna. Þeir læra að þær tilfinningar sem þeir  upplifa (reiði) er annað en aðgerðir (lemja einhvern) og að tilfinningar  eru  alltaf eðlilegar og ásættanlegar þó að vissar aðgerðir séu það  ekki. Þeir  læra að nota "ég-boð" um tilfinningar sínar og að nota  mismundandi  leiðir til að tjá og fást við tilfinningarnar. Á bekkjarfundum virðast  nemendur vera fúsari að hlusta hver á annan  en á fullorðna.  Þeir gefa  hvor öðrum endurgjöf sem hjálpar þeim að  þróa með sér sjálfsaga og  sjálfsstórn og að læra af reynslunni.

· Samskiptahæfileikar. Hæfni nemenda til að vinna með öðrum með góðum samskiptum,  skipulegri samvinnu, samningum, virkri þátttöku, hlustun og samhygð. Bekkjarfundir gefa frábært tækifæri fyrir nemendur til að þróa  samskiptahæfni sína með samræðum og með því að deila skoðunum,  reynslu og tilfinningum. Með því að hlusta og setja sig í spor annarra,  vinna saman, semja um lausnir og hjálpast að við að leysa deilumál. Í  stað þess að blanda sér í og leysa málin fyrir nemendur geta kennarar  bent á að málin séu sett á dagskrá bekkjafunda svo þeir geti saman  fundið lausnir sem allir græða á.

· Ábyrgð. Hæfni nemenda til að bregðast við takmörkunum og afleiðingum í  daglegu lífi með ábyrgð, aðlögunarhæfni, sveigjanleika og heiðarleika. Bekkjarfundir gefa nemendum tækifæri til að greina atburði og reynslu,  að kunna skil á afleiðingum og valkostum, og æfa sig á að velja  ábyrga  kosti. Þetta dregur úr vonbrigðum og óþoli, reiði og  tilhneigingum til að  sýna óæskilega hegðun.

· Dómgreind. Hæfni nemenda til að nýta reynslu sína og þekkingu til að meta  aðstæður og aðgerðir með hliðsjón af réttu gildismati. Nemendur þróa með sér góða dómgreind þegar þeir hafa tækifæri og  hvatningu til að æfa sig í að meta kosti og taka ákvarðanir í umhverfi  sem leggur áherslu á viðleitnina til að gera betur.  Þetta er prýðileg  lýsing á því hvað gerist á áhrifaríkum bekkjarfundi.  Of margir fullorðnir  búast við að nemendur þrói með sér dómgreind án þess að þeir fái  tækifæri til að æfa sig, gera mistök, læra og reyna aftur.  Reglulegir  bekkjarfundir gefa nemendum góðan tíma til þess.

Bekkjarfundir eru grundvallaratriði í framkvæmd stefnunnar því að þar fá nemendur tækifæri til að æfa framangreind atriði í öruggu umhverfi. Því er lögð mikil áhersla á að kenna rétta framkvæmd þeirra, þeir séu haldnir eftir settum reglum og nægilega oft.

Í framkvæmd bekkjarfundanna er lögð áhersla á eftirfarandi:

  • Við myndum hring
  • Við veitum hrós og viðurkenningar
  • Við vinnum skv. ákveðinni dagskrá
  • Við þróum samskiptahæfnina með æfingum
  • Við lærum um mismunandi skynjun / veruleika
  • Við lærum um fjórar ástæður þess að fólk gerir það sem það gerir
  • Við æfum hlutverkaleiki og hugstormun
  • Við einbeitum okkur að lausnum án refsinga


Stefnunni fylgja einnig fleiri atriði eins og að starfsmenn læri að skilja ástæður “rangrar” hegðunar nemenda, að samskipti þeirra við nemendur séu hvetjandi, að byggt sé upp traust og gott samband milli heimila og skóla, að starfsmenn vinni saman í teymum og hjálpist að við að finna lausnir á vandamálum sem upp koma, og síðast en ekki síst gerir hugmyndafræðin ráð fyrir að kennarar tileinki sér fjölmargar hagnýtar aðferðir við bekkjarstjórnun  en þær eru eftirfarandi:

  • Að gefa nemendum ákveðna valkosti
  • Að fela nemendum ákveðin verkefni eða ábyrgð í skólanum / kennslustofunni
  • Þrautalausnir
  • Eftirfylgni með virðingu og reisn
  • Spyrja (ekki segja) "hvað", hvers vegna" og "hvernig"
  • Leiðbeinandi spurningar
  • Gera ekkert (augljósar afleiðingar)
  • Ákveða hvað við gerum
  • Segja NEI með virðingu og reisn
  • Framkvæma meira - tala minna
  • Setja alla í sama bátinn
  • Jákvæð einvera nemenda


Sjá hugtakakort hér

Sjá glærukynningu hér

Grein um fjölskyldufundi
Glærur um fjölskyldufundi

Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar t.d. á eftirfarandi vefslóðum:

http://www.posdis.org/

http://www.positivediscipline.com/


 

Auglýsingar

Hverfisnefnd
Naustatjörn

Innskráning







Teljari

Í dag: 18
Samtals: 41000

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn