Að lokinni kennslu gefst 6 – 9 ára nemendum kostur á að vera í Frístund til kl. 16:15. Þar geta börnin leikið við félagana,
verið úti, lesið, unnið í heimanámi, hvílt sig ogmargt fleira. Frístund er opin alla daga sem skólinn starfar, og auk þess í
fríum á starfstíma skólans og flestum starfsdögum. Foreldrar greiða fyrir vistun nemenda í Frístund skv. gjaldskrá.
Forstöðumaður Frístundar er Hrafnhildur Stefánsdóttir hrafnhildurst@akmennt.is
Sími í Frístund er 460-4111
Gjaldskrá fyrir Frístund frá 1. janúar 2012:
Skráningargjald 6.280 kr. (Greiddar að lágmarki 20 klst á mánuði)
Hver klukkustund eftir fyrstu 20 klst. 314 kr.
Síðdegishressing pr. dag 112 kr.
Með tenglunum hér fyrir neðan má nálgast viðmiðunarreglur fyrir Frístund og eyðublöð varðandi Frístundina.
Viðmiðunarreglur fyrir Frístund
Gjaldskrá Frístundar frá hausti 2009 til desember 2011


