Velkomin á heimasíðu Naustaskóla

Heimasíða Naustaskóla á Akureyri

Foreldrastarf vetrarins

Skipulag foreldrastarfs við Naustaskóla er með þeim hætti að mælst er til að hver árgangur standi fyrir þremur uppákomum yfir veturinn.  Stjórn Foreldrafélagsins skiptir foreldrum hvers árgangs í þrjá hópa og hver hópur sér um eina uppákomu (fyrir allan árganginn), viðmiðið er að fyrsta uppákoman sé í október/nóvember, næsta uppákoma sé í janúar/febrúar og sú síðasta í mars/apríl.  Í hverjum hópi er eru foreldrar eins barns ábyrgir fyrir að kalla hópinn saman en að öðru leyti bera foreldrar jafna ábyrgð á framkvæmd atburðanna, og ef sá sem á að kalla hópinn saman gleymir sér bera hinir í hópnum ábyrgð á að minna hann á eða boða til fundar. 
(Bent er á að til að kalla saman foreldrahópinn er gott að nota fjölskylduvef mentor.is, þá er smellt á hlekkinn "bekkjarlisti" síðan er hægt að haka við þá foreldra sem við á og senda póst á allan hópinn með einni aðgerð)

Foreldrafélagið hefur sett upp ramma með tillögum um hvað sé hægt að gera á hverju tímabili.  Foreldrum er frjálst að bregða út frá þessum ramma en Foreldrafélagið leggur áherslu á að móta hefðir í hverjum árgangi þannig að hægt sé að ganga að einhverjum uppákomum vísum. Þær uppákomur eru dökkletraðar í töflunni hér fyrir neðan.
Mælt er með að stilla kostnaði í hóf þannig að allir geti tekið þátt t.d. með því að allir taki með eitthvað smálegt á hlaðborð.

 

Október – nóvember

Janúar – febrúar

Apríl – maí

1.  bekkur

Spilakvöld/náttfatakvöld

Uppákoma með kennurum

Naustaborgir

2. bekkur

Spilakvöld/náttfatakvöld

leikir

Hestaferð

3. bekkur

Spilakvöld/náttfatakvöld

Bingó

Naustaborgir

4. bekkur

Spilakvöld/náttföt

Kiðagil

Naustaborgir

5. bekkur

Myndbandakvöld

Hæfileikakvöld

Veiðiferð/dorgveiði

6. og 7. bekkur

Myndbandakvöld

Spilakvöld

Reykjaskóli/gisting í Naustaskóla

8. bekkur

Spilavist

Þorrablót

Útivist

Með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan má nálgast skjal með nafnalistum hvers árgangs. Foreldrar þeirra barna sem eru með gullitað nafn sjá um að boða aðra foreldra í sínum hóp á fund til að undirbúa bekkjarkvöldið. Þeir bera þó ekki meiri ábyrgð en aðrir foreldrar á bekkjarkvöldinu sjálfu .

Við undirbúning getur verið gott að styðjast við "Foreldrabankann" en það er mappa sem hægt er að nálgast hjá ritara/stjórnendum skólans. Þar er að finna hagnýt ráð og uppástungur að bekkjarkvöldum. Ef frekari upplýsingar vantar er foreldrum velkomið að snúa sér til stjórnar Foreldrafélagsins.

Smellið á tengilinn hér fyrir neðan til að nálgast nafnalista hvers hóps fyrir sig:

Nafnalistar foreldrahópa vegna bekkjakvölda (1.-9. bekkur)

Auglýsingar

Hverfisnefnd
Naustatjörn

Innskráning







Teljari

Í dag: 11
Samtals: 46263

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn