Velkomin á heimasíðu Naustaskóla

Heimasíða Naustaskóla á Akureyri

Félagsmiðstöð

Félagsmiðstöðin Trója, sem staðsett er í Rósenborg (gamla Barnaskólanum) þjónar Brekkuskóla, Lundarskóla og Oddeyrarskóla.  Trója annast einnig félagsmiðstöð í húsnæði Naustaskóla, hún er opin sem hér segir:

Einu sinni í viku fyrir 8.-9.  bekk skólans á þriðjudagskvöldum kl. 19:30. 
DAGSKRÁ HÉR

Fyrsta  þriðjudag í mánuði er opið fyrir 6.- 7. bekk kl. 16:30-18:30. 
DAGSKRÁ HÉR

Fyrsta  miðvikudag í mánuði er opið fyrir 4.- 5. bekk kl. 16:30-18:30. 
DAGSKRÁ HÉR

Starfsmenn  félagsmiðstöðvarinnar í Naustaskóla eru Sigurlaug Vordís Unnsteinsdóttir, netfang vordis@akureyri.is og Ingólfur Stefánsson.

Félagsmiðstöðin Trója hefur verið starfrækt í núverandi mynd í 4 ár og þjónar og elsta stigi. Starfsemin felur í sér  meðal annars :

  • Opin hús
  • Félagsmiðstöðvarval (félagsmálafræði)
  • Unglingalýðræði
  • Klúbbastarf – t.d. tölvuklúbb, listaklúbb, alþjóðaklúbb og stelpuklúbb.
  • Samfés viðburðir- t.d samfés smiðjur, Stíll,  söngkeppni o.s.frv.
  • Sameiginlegir viðburðir félagsmiðstöðvanna á Akureyri- spurningakeppni, hönnunarkeppnin Furðuverk, góðgerðavika o.s.frv.

Opnunartími í félagsmiðstöðinni Tróju í Rósenborg er sem hér segir

  • Mánudaga 17:00 – 21.:30 (8-10 bekkur)
  • Fimmtudaga 19:30 – 21:30 (8-10 bekkur)

Athugið að nemendum Naustaskóla er að sjálfsögðu velkomið að mæta í félagsmiðstöðina Tróju í Rósenborg líka!

Hægt er að finna okkur á facebook.is  sem og á www.akureyri.is/rosenborg 

 

Símanúmer og aðrar hagnýtar upplýsingar

Reglurnar í félagsmiðstöðinni

Neysla áfengis, tóbaks og annarra vímugjafa er með öllu óheimil jafnt innan dyra sem utan.

Unglingunum er óheimilt að vera með áfengi, tóbak og aðra vímugjafa í vörslu sinni jafnt innan dyra sem utan í félagsmiðstöðinni og í ferðum á vegum hennar.

Unglingum ber að virða þessar reglur og koma fram við starfsfólk og aðra gesti í félagsmiðstöðinni af virðingu.

Séu reglur félagsmiðstöðvarinnar brotnar er haft samband við foreldra

 

 

Auglýsingar

Hverfisnefnd
Naustatjörn

Innskráning







Teljari

Í dag: 11
Samtals: 46263

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn