Velkomin á heimasíđu Naustaskóla

Heimasíða Naustaskóla á Akureyri

Fyrstu áherslur

Í vetur verður unnið að stefnumótun fyrir skólann í samstarfi við skólaráð og í samræmi við upplýsingar sem aflað verður frá foreldrum.  Stefnuþættir verða kynntir hér á heimasíðunni jafnóðum og þeir mótast.

Við stefnumótunina er hins vegar stuðst við niðurstöður vinnuhóps sem starfaði við hönnun og undirbúning skólans. Meginniðurstöður vinnuhópsins voru:

Að Naustaskóli ætti að:
  • Einkennast af virðingu, víðsýni, hlýju og samvinnu þar sem lögð væri áhersla á að byggja upp sjálfstæða einstaklinga með jákvæða sjálfsmynd, einstaklinga sem kynnu hagnýt vinnubrögð og vissu hvert þeir ættu að leita til að afla sér upplýsinga og fræðast.
  • Vera miðstöð fyrir alla íbúa hverfisins.
Að skólastarfið ætti að:
  • Taka mið af mismunandi þörfum og getu hvers og eins og einkennast af sveigjanleika og fjölbreytni hvort heldur sem um væri að ræða námsefni, námsleiðir og námsmat en áréttað var mikilvægi þess að meta nemendur í samræmi við starfið í skólanum.
  • Tengjast náttúrunni, grenndinni, atvinnulífinu og íbúum hverfisins.
  • Leggja áherslu á að virkja foreldra til þátttöku.
Smellið hér til að opna skýrslu um starf undirbúningshópsins

Auglýsingar

Hverfisnefnd
Naustatjörn

Innskráning







Teljari

Í dag: 17
Samtals: 40999

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn