Kynningar og samráðsdagur
fimmtudagur 30.september 2010
Fimmtudagurinn 30. september er kynningar- og samráðsdagur.
Þennan dag verður frí í skólanum hjá nemendum en Frístund opin fyrir nemendur í 1.-4. bekk sem þar eru skráðir. Foreldrum í 2.-8. bekk er boðið að mæta í skólann þennan dag kl. 8 að morgni. Þar munu umsjónarkennarar taka á móti þeim og fræða þá um skólastarfið, m.a. kennsluaðferðirnar Byrjendalæsi og Orð af orði, fyrirkomulag námsmats, það verður kynning á jákvæðum aga o.fl. Áætlað er að þetta taki um eina klukkustund.


