Velkomin á heimasíđu Naustaskóla

Heimasíða Naustaskóla á Akureyri

Fréttir

Ađalfundur Foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Naustaskóla verður haldinn í skólanum mánudaginn 13. september kl. 20:00-21:30. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf, kjör fulltrúa foreldra í skólaráð, umræður um foreldrastarf í hverjum árgangi/námshópi og umræður um foreldrasamning Heimila og skóla, auk praktískra upplýsinga og tækifæra til fyrirspurna og umræðna. 

Stuðningur foreldra og áhugi á skólamálum skilar sér bættri frammistöðu og vellíðan barnanna okkar í skólanum. Niðurstöður rannsókna sýna að samskipti foreldra og skóla hafa jákvæð áhrif á skólastarf. Ávinningur samstarfs er meðal annars:
.       Betri líðan barna í skólanum
.       Aukinn áhugi og bættur  námsárangur
.       Aukið sjálfstraust nemenda
.       Betri ástundun og minna brottfall
.       Jákvæðara viðhorf foreldra og nemenda til skólans
.       Aukinn samtakamáttur foreldra í uppeldis og menntunarhlutverkinu
Heimild: (Handbók Heimilis og skóla 2010).

Við viljum biðja foreldra sem hafa áhuga á að sitja í stjórn Foreldrafélagsins eða að vera bekkjarfulltrúar að senda póst á Vöku Óttarsdóttur ritara félagsins (vaka@mentor.is) Enn eru laus sæti -fyrstur kemur fyrstur fær!
 Afar mikilvægt er að við mótum frá upphafi þá hefð að foreldrar mæti á fundi Foreldrafélagsins og taki virkan þátt í starfinu. Því leggjum við mikla áherslu á að allir nemendur skólans eigi fulltrúa á aðalfundinum!



Auglýsingar

Hverfisnefnd
Naustatjörn

Innskráning







Teljari

Í dag: 20
Samtals: 41002

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn