Fullt af nýjum myndum af skólastarfinu hjá okkur
föstudagur 03.febrúar 2012
Fullt af nýjum myndum eru komnar á heimasíðuna hjá okkur. Myndir af huguðum drengjum að borða þorramat, myndir frá hæfileikakeppninni
Naustaskóli "got talent" sem var haldin 2. febrúar og myndir frá deginum í dag sem er tileinkaður stærðfræðinni og voru ýmsar þrautir
í boði dagsins.
Myndasíða Naustaskóla
Myndasíða Naustaskóla
Fulltrúar okkar í spurningakeppni
grunnskólanna á Norðurlandi, þau Kristófer, Odda og Pétur, stóðu sig frábærlega, komust alla leið í úrslit í
keppninni og urðu í öðru sæti! Í riðlakeppninni unnu þau lið bæði Brekkuskóla og Hrafnagilsskóla, í
undanúrslitum lögðu þau lið Síðuskóla en í sjálfri úrslitaviðureigninni töpuðu þau fyrir Dalvíkingum.
Sannarlega glæsilegur árangur hjá krökkunum sem eru náttúrulega öll í 9. bekk.
Miðvikudaginn
8.febrúar verður haldinn kynningarfundur um val á grunnskóla. Fundurinn verður í sal Brekkuskóla og er frá kl.20.00 til kl.22.00
Við minnum á að á
vefsíðunni
Nemendur í 4.-5. bekk bjuggu til og
tóku upp sín eigin lög í tónmennt fyrir áramótin. Þetta eru hinar athyglisverðustu tónsmíðar og má
hlýða á lögin á síðunni 

