Útivistardagur mánudaginn 27. mars!

 

Nýr dagur fyrir útivist er áætlaður á mánudaginn 27. mars. Við höldum okkur við sama skipulag og áður og upplýsingablöð fyrir skíðaleigu í 4.-10. bekk sem hafa þegar verið send munu gilda.

Mánudagur 27. mars er áformaður útivistardagur í Naustaskóla (ef veður leyfir) þar sem okkur býðst að fara í Hlíðarfjall.  Þeim nemendum sem ekki geta farið í fjallið af heilsufars- eða öðrum mjög brýnum ástæðum verður boðið upp á afþreyingu í skólanum. 

Nemendur í 4.-10. bekk geta fengið lánaðan búnað endurgjaldslaust en nemendur í 1.-3. bekk geta því miður ekki fengið lánaðan búnað en er velkomið að hafa með sinn eigin búnað eða snjóþotur og sleða.

Þar sem töluverð ásókn hefur verið í að fá lánaðan búnað hvetjum við þá nemendur sem eiga skíði eða bretti að koma með sinn búnað.  

Unnið er að því að kanna þörf fyrir búnað fyrir nemendur og þurfum við að senda þær upplýsingar upp í fjall.  Hægt verður að fara á svigskíði, bretti, gönguskíði eða jafnvel fara í gönguferð. Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut og Hjallabraut. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls.

Við komuna í fjallið fá nemendur lyftukort sem gilda allan daginn og geta eldri nemendur nýtt sér það ef vilji er til, en athugið að skila þarf inn lánsbúnaði um hádegi, þegar rútur á vegum skólans fara heim. 

Ef nemendur óska eftir að verða eftir í fjallinu þegar dagskrá lýkur þurfa foreldrar að hafa óskað eftir því með undirskrift á blaðinu. Athugið að nemendur eru þá á eigin vegum eftir að rútur skólans eru farnar.

Þegar nemendur koma til baka í skólann fá þeir hádegisverð, yngstu nemendurnir fara í eina kennslustund en fara að því búnu heim (eða í Frístund ef þeir eru skráðir þar). Áætlaða heimferðartíma má sjá hér á eftir.  

Þeir nemendur sem sjá sér ekki fært af einhverjum ástæðum að fara upp í Hlíðarfjall taka þátt í útivistardeginum í Naustaskóla. Mikilvægt að láta umsjónarkennara vita. 

Tímasetningar:

  • 1.-3. bekkur:  Mæting í skóla kl. 8:10

      • Brottför frá skóla kl. 8:30

      • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 11:20

      • Skóladegi lýkur kl. 13:00

  • 4.-7. bekkur:   Mæting í skóla kl. 8:10

      • Brottför frá skóla kl. 8:15

      • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 12:00

      • Skóladegi lýkur kl. 13:00 

  • 8.-10. bekkur  Mæting í skóla kl. 8:50

      • Brottför frá skóla kl. 9:00

      • Heimferð úr Hlíðarfjalli kl. 12:40

      • Skóladegi lýkur ca. kl. 13:30

 Útbúnaður:

  • Skíði, bretti, snjóþotur, þoturassar, svartir plastpokar og sleðar eru leyfðir til fararinnar.
  • Hjálmar eru nauðsynlegir! (Bent er á að hægt er að nota reiðhjólahjálma)
  • Mikilvægt er að nemendur séu vel klæddir og í vel merktum fatnaði.
  • Muna eftir nesti, sjoppan er ekki opin.