Upplestrarkeppnin í 7. bekk

Í dag fór fram hin árlega upplestrarkeppni 7. bekkjar og stóðu nemendur sig með prýði. Stóra upplestrarkeppnin verður svo haldin í Menntaskólanum á Akureyri miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 17:00. Dómarar voru Sigríður Ása Harðardóttir, Særún Magnúsdóttir og Heiða Björg Guðjónsdóttir. Það voru þau Jóna Margrét Arnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir og til vara Aron Snær Eggertsson sem valin voru fyrir hönd Naustaskóla til að taka þátt í keppninni að þessu sinni.