Skólasetning Naustaskóla 2018-2019

Skólasetning í Naustaskóla verður þriðjudaginn 21. ágúst.  Nemendur mæti á eftirfarandi tímum: 
Kl. 10:00 nemendur í 2.-5. bekk 
Kl. 11:00 nemendur í 6.-10. bekk. 
Á skólasetningunni hitta nemendur umsjónarkennara, fá stundaskrá og fræðast um starfið í vetur. Foreldrar eru velkomnir og við mælumst sérstaklega til þess að foreldrar nýrra nemenda í skólanum fylgi sínum börnum. Kennsla hjá 2.-10. bekk hefst skv. stundaskrá miðvikudaginn 22. ágúst en hjá 1. bekk hefst kennsla fimmtudaginn 23. ágúst. Foreldrar barna í 1. bekk fá nánari upplýsingar í bréfi í næstu viku þegar kennarar mæta til starfa.