Skólasetning

Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst.  Nemendur mæti á eftirfarandi tímum:   Kl. 10:00 nemendur í 2.-5. bekk og kl. 11:00 nemendur í 6.-10. bekk. Nemendur í 1. bekk og forráðamenn mæta í viðtöl á skólasetningardaginn eða þriðjudaginn 23. ágúst. Tölvupóstur með upplýsingum varðandi viðtölin hjá 1. bekk verður sendur út á næstu dögum.  Kennsla hjá 2.-10. bekk hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst en hjá 1. bekk hefst kennsla miðvikudaginn 24. ágúst. Á skólasetningunni hitta nemendur umsjónarkennara, fá stundaskrá og fræðast um starfið í vetur. Foreldrar eru velkomnir og við mælumst sérstaklega til þess að foreldrar nýrra nemenda í skólanum fylgi sínum börnum.