Foreldrafundi frestað til 28. september

Stjórn foreldrafélagsins hefur ákveðið að fresta aðalfundi félagsins um tvær vikur, en hann átti að vera í kvöld kl 20.00.

Hér með er því boðað til aðalfundar miðvikudaginn 28. september kl. 20.00 á sal skólans.

Foreldrum og forráðamönnum er bent á að ætlast er til að aðili frá hverju heimili mæti á fundinn. Farið verður yfir hefðbundin aðalfundarstörf en megináhersla lögð á að skipuleggja bekkjarkvöld komandi skólaárs.
Það verkefni skal unnið í sameiningu af foreldrum hvers bekkjar og er reiknað með miklum krafti í starfinu á komandi vetri!

Bestu kveðjur f.h. stjórnar,
Áshildur