Foreldradagurinn

         
             Heimili og Skóli – landssamtök foreldra halda Foreldradaginn árlega og nú í samstarfi við Menntamálastofnun.

             Viðburðurinn ber yfirskriftina Læsi í krafti foreldra.
             Læsisuppeldi er umhyggja fyrir barninu en markmiðið málþingsins er að vekja foreldra til vitundar um mikilvægi læsisuppeldis.
             Streymt verður frá viðburðinum á Facebook-síðum Heimilis og skóla og Menntamálastofnunar.

              Með kveðju,
              Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir,
              læsisráðgjafi.