Bókagjöf frá Foreldrafélaginu í Naustaskóla

Bókagjöf frá foreldrafélaginu.
Bókagjöf frá foreldrafélaginu.

Bókasafnið í Naustaskóla var að fá glæsilega bókagjöf frá foreldrafélagi skólans. Kemur hún sér mjög vel þar sem nú stendur yfir lestrarátak grunnskólanemenda á öllu Íslandi og gott er að hafa nýjar og ferskar bækur til taks handa nemendum. Settur var saman óskalisti nemenda þar sem nemendur fengu að koma með sínar óskir af áhugaverðum bókum til að hafa á litla en ört stækkandi bókasafninu okkar. Einnig hafa fleiri nýjar bækur verið keyptar og verður bókakynning á þeim von bráðar. Bækurnar allar verða svo til útláns eftir kynningu. Við þökkum Foreldrafélaginu innilega vel fyrir. Hefst þá lesturinn...