Velkomin(n) á heimasíðu
Naustaskóla á Akureyri
Naustaskóli við Hólmatún, sími 460 4100, netfang; naustaskoli@akureyri.is
Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
Fullt af nýjum myndum af skólastarfinu hjá okkur
föstudagur 03.febrúar 2012
Fullt af nýjum myndum eru komnar á heimasíðuna hjá okkur. Myndir af huguðum drengjum að borða þorramat, myndir frá hæfileikakeppninni
Naustaskóli "got talent" sem var haldin 2. febrúar og myndir frá deginum í dag sem er tileinkaður stærðfræðinni og voru ýmsar þrautir
í boði dagsins.
Myndasíða Naustaskóla
Myndasíða Naustaskóla
Fréttabréf og matseðill - febrúar 2012
fimmtudagur 02.febrúar 2012
Glæsilegur árangur í spurningakeppni
fimmtudagur 02.febrúar 2012
Fulltrúar okkar í spurningakeppni
grunnskólanna á Norðurlandi, þau Kristófer, Odda og Pétur, stóðu sig frábærlega, komust alla leið í úrslit í
keppninni og urðu í öðru sæti! Í riðlakeppninni unnu þau lið bæði Brekkuskóla og Hrafnagilsskóla, í
undanúrslitum lögðu þau lið Síðuskóla en í sjálfri úrslitaviðureigninni töpuðu þau fyrir Dalvíkingum.
Sannarlega glæsilegur árangur hjá krökkunum sem eru náttúrulega öll í 9. bekk.
Skólaval 2012
þriðjudagur 31.janúar 2012
Miðvikudaginn
8.febrúar verður haldinn kynningarfundur um val á grunnskóla. Fundurinn verður í sal Brekkuskóla og er frá kl.20.00 til kl.22.00 Sjá nánar dagskrá fundarinsGrunnskólarnir verða með opið hús kl. 09:00-11:00 fyrir
foreldra eftirtalda daga í febrúar:
Miðvikudaginn 8. febrúar - Lundarskóli
Föstudaginn 10. febrúar - Brekkuskóli og Giljaskóli
Þriðjudaginn 14. febrúar - Oddeyrarskóli
Miðvikudaginn 15. febrúar - Naustaskóli
Fimmtudaginn 16. febrúar - Glerárskóli
Föstudaginn 17. febrúar - Síðuskóli
Foreldrar barna sem fædd eru árið 2006 eru hvattir til að mæta!
Foreldraeftirlit í Windows 7
þriðjudagur 24.janúar 2012
Við minnum á að á
vefsíðunni http://www.saft.is/ er að finna ýmsar gagnlegar ábendingar fyrir foreldra varðandi tölvu- og
netnotkun. Þar er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig foreldrar geta stillt tölvur heimilisins til að stýra notkun barnanna hvað varðar
leikjanotkun, vefskoðun og tölvunotkunina yfirleitt. Sjá
hér.....
Lagasmíðar 4.-5. bekkinga
fimmtudagur 05.janúar 2012
Nemendur í 4.-5. bekk bjuggu til og
tóku upp sín eigin lög í tónmennt fyrir áramótin. Þetta eru hinar athyglisverðustu tónsmíðar og má
hlýða á lögin á síðunni http://www.soundcloud.com/naustaskoli.Ýmsar myndir úr skólanum
Á næstunni
13.02.2012
22.02.2012
23.02.2012
24.02.2012
5.03.2012


